Fólk ...
*BeNgSta'* og 3 á kantinum
Nabbi Lilli
Bríet og Lilja
Snorri golfecourse designer
Aníta systir

Habba tátalingur

Haffirringar ...
Brynja og Karen
Mýa
Gummi Vigg og có.
Guðni Rós
Steingrímur
Vignir Freyr
Hjördís og Sólrún
Han Solo
Svava og Hrefna
Tryggvi
Árni Gúmm

Finnbogi mús

Agla, Sandra og fl. hooters

Martin

Þórunn með hárið

Eyjamenn ...
Boggi Blái
Gunnar Þór
Eygló Egils
Íris

FG'ingar ...
Biggi
Davíð Smári
Elli Blö
Einar Oddur
Trunturnar
Tómas Freyr

Bekkjarfélagar ...
Bekkjarblogg
Aldísin
Disco Dóri
Unnar

Unnar

Helgi Jóns

Unnur Björk

Aðrir ...
Sibbi

Sigríður Inga

Unnur skinka

Myndir ...
Myndasíðan á Flickr
Kanínuafmæli hjá Beggu
London
Eurovision
Teikni-Leikni afmæli
Begga í afmæli og bærinn
Áramót

Skólinn ...
Kennó
WebCT
Stúdentaráð

Handhægt ...
Glitnir - netbanki
internet.is
B2
Blogger
Sjónvarp.is
mbl.is
Vísir
RÚV
MySpace ...
a>
MySpace

Bíómynd ...
Gemsar

Eldra
07/01/2002 - 07/31/2002
08/01/2002 - 08/31/2002
09/01/2002 - 09/30/2002
11/01/2002 - 11/30/2002
12/01/2002 - 12/31/2002
05/01/2003 - 05/31/2003
08/01/2003 - 08/31/2003
09/01/2003 - 09/30/2003
10/01/2003 - 10/31/2003
11/01/2003 - 11/30/2003
12/01/2003 - 12/31/2003
01/01/2004 - 01/31/2004
02/01/2004 - 02/29/2004
03/01/2004 - 03/31/2004
07/01/2004 - 07/31/2004
01/01/2005 - 01/31/2005
02/01/2005 - 02/28/2005
03/01/2005 - 03/31/2005
04/01/2005 - 04/30/2005
06/01/2005 - 06/30/2005
08/01/2005 - 08/31/2005
09/01/2005 - 09/30/2005
10/01/2005 - 10/31/2005
11/01/2005 - 11/30/2005
12/01/2005 - 12/31/2005
01/01/2006 - 01/31/2006
02/01/2006 - 02/28/2006
03/01/2006 - 03/31/2006
04/01/2006 - 04/30/2006
05/01/2006 - 05/31/2006
06/01/2006 - 06/30/2006
07/01/2006 - 07/31/2006
08/01/2006 - 08/31/2006
09/01/2006 - 09/30/2006
10/01/2006 - 10/31/2006


Andri ...
Andri Ómarsson
andriom hjá internet.is
697 5667 - 664 5767

25.2.05 ...
Árshátíð í Kennó


Sent með GSMbloggi Og Vodafone
Árshátíð í Kennó
Fór í klippingu á Kompaníinu í hádeginu á fimmtudaginn og borgaði 3200. Klipping er orðin dýr, man eftir því þegar maður trítlaði með þúsundkall í plastpoka á Fjarðartorg þar sem nú er Nóatún og fékk fína klippingu. Svo er Begga víst orðinn svaka klippidama samkvæmt þessu og hún hefði bara getað reddað þessu.

Eeen... Góð blanda af klósettpappír (áhrif frá Gumma) og söng á eftir að redda árshátíðinni í Kennó í kvöld. Tómstundabraut, 4. misseri, á eftir að slá í gegn.

Búinn að vera í lotu í skólanum; vænn skamtur af öldrun, félagsfræði og verkefnum getur ekki skemmt fyrir góðri skemmtun á Breiðvangi í kvöld. Fyrst matur (veit ekki hvað og flestir eiga ekki eftir að muna hvað þeir fengu á morgun) og skemmtó (Aldís og klósettpappír), svo ball með Milló (kemur Páll Óskar í hvíta gallanum?). Set myndirnar á plássið þegar þetta er afstaðið.
21.2.05 ...
T630
Jæja, keypti mér loksins nýjan síma. Mamma sagði við mig á laugardaginn að ég væri búinn að vera mjög þolinmóður og nægjusamur með þennan sem ég var með og ætti sko bara að "leyfa mér það að fá mér nýjan síma" sem ég og gerði. Nú er nýji Sony Ericson T630 síminn minn í sinni standard 16 tíma hleðslu - sem er by the way óþolandi.

Edit: Las bæklinginn, þarf bara að vera í fjóra tíma í hleðslu sem er goooott! Takk Gunnar Þór fyrir reddið.
19.2.05 ...
Will Smith
Vá, sá lokin á nýju myndbandi með Will Smith á PoppTívi áðan og minntist þess hve góður tónlistarmaður hann er. Hver man ekki eftir plötunni Willenium (bara 899 í Netverslun Skífunnar) og lögum eins og Gettin' jiggy with it, slagaranum Just the two of us og svarinu við 2000 vandanum Will2k.

Það verður plötukynning þegar Gunnzi kemur heim, ég veit að hann er til.
18.2.05 ...
Kringlan
Fórum á McDonalds í gær, Super size me hafði ekki áhrif lengi... Franskarnar hjá þeim eru bara of góðar enda settar frosnar í djúpsteikingarpottinn en það er meira svona innanhússmál. Allavegana, voða góður hammi og voða góðar franskar ... Fékk meira að segja tómatsósu með án þess að biðja um hana, en samt kostar hún tíkall. Veit ekki hvort hann hafi bara rukkað mig eða hvort það fylgir með stjörnumáltíðinni, en það er svona á milli okkar bara ... Mín og Mc.

Nú komum við að sögunni, einhver krakkagríslingur fékk barnabox með einhverju morðtóli í og fór að skjóta því í Beggu. Og ég alveg, hey láttu hana í friði drengur. Nei nei, við bara hljógum þar til hann skaut og hitti ekki og það fór í fólkið við hliðiná. Mamma drengsins alveg í keng og þarmeð voru þau farin!
10.2.05 ...
Internetið
I am 42% Internet Addict.
Slight Internet Addict.
I could go either way. Deep into the madness of nights filled with coding CGI-Scripts and online role playing games, or I could become a normal user. Good luck!


Úff, ég var orðinn ansi hræddur um að vera meiri internet fíkill en Gunnzi frændi því ég var búinn að svara svo mörgu játandi, en rétt slapp!
7.2.05 ...
Helgin
Jæja, upp er runninn mánudagur sem þýðir að helgin er búin. Myndirnar eru komnar á internet alnetsins.

Þetta var án efa snilldar helgi, allir komust á áfangastað þrátt fyrir að það átti að vera hægri beygja þarna í leiðarvísinum. Sumir áttu hinsvegar erfiðara með að komast heim og komu bílnum ekki í gang, fengu sér bara hambó fyrst í Hyrnunni og reyndu svo bara aftur og þá rauk kvikindið af stað.

Til hamingju með afmælið Begga aftur og aftur, takk öll fyrir frábæra helgi!
1.2.05 ...
Skorradalur
Begga spyr mig endalaust hvar þessi sumarbústaður sem við erum að fara í sé, ég hef ekki hugmynd um það ... Hef aldrei komið þangað. Veit að maður á að beygja til hægri áður en maður kemur að Borgarfjarðarbrúnni og svo til vinstri inn í Skorradal.

En netið hefur ákveðnar hugmyndir um Skorradalinn og vatnið sjálft.

"Í Skorradal er vatn sem heitir Skorradalsvatn. Það er um 16 km langt og víðast um 1 km á breidd. Vatnið er 14,3 km og mesta dýpi þess 60 km. Þar er líka skógur. Ófreskja er talin vera í Skorradalsvatni. Það er stór ormur." (Hofstaðaskóli 2004)

"Fitjá úr Eiríksvatni rennur í það og Andakílsá er afrennsli þess. Þegar Andakílsárvirkjun var byggð, hækkaði yfirborð vatnsins vegna stíflugerðar. Mikið er af bleikju í vatninu, en mest af henni er fremur smár fiskur, um og innan við eitt pund. Talið er, að vatnið jaðri við að vera ofsetið, en þó er fiskurinn í þokkalegum holdum." (Nordic Adventure Travel 2005)

Hér er svo kort, en bústaðurinn sem við erum í ku vera innar en Hvammur. Í landi Vatnsenda, svæði 1 og bústaðurinn nr. 15 held ég.

Svo er þetta skemmtilega kort af Skorradal á nágrenni.

Og hér eru upplýsingar um bústaðinn.