Men, pabbi var að versla breiðbandið áðan. Hann verður að sjá enska boltann og fékk óvart með nokkrar evrópskar stöðvar þannig að rásafjöldinn á sjónvarpinu heima er kominn í sirka 50. Mottóið mitt er samt því fleiri stöðvar, því meira sem þú missir af.
Fletti í gegnum þetta áðan og sá alveg Bang gang að stoppa ástina á SV1 og svo var Torrini í hjartastoppi á M6 sem er held ég frönsk stöð, allt voða íslenskt og voða gaman. Sáum líka Mythbusters á Discovery sem er alveg frábær en þýskur skemmtiþáttur var ekki að gera sig. Fólk átti að hringja inn og lesa útúr stafarugli sem var sett upp einhvernveginn svona:
H O L
W L O
Y O D
Í þrjár mínútur hringdi enginn inn meðan þulan reyndi að vera eggjandi (ath, hún var þýsk) og beit í varirnar í von um að einhver myndi hringja. Loksins hringdi einhver einn snillingur inn og fattaði að þetta var HOLLYWOOD og fékk 290 evrur fyrir! Eru þjóðverjar í alvörunni svona blindir fyrir ensku?