Mamma mía - Sit enn sveittur að lesa fyrir þroskasálfræðiprófið. Hugga
mig við það að ég fékk 6.8 í æfingaprófinu áðan en fékk 5.4 síðast. Það
er talsverð hækkun miðað við það að það eru bara 25 spurningar.
Allavega, amma dúra bauð í mat hjá gerðu frænku áðan. Svokölluð litlu
jól sem enduðu með því að amma og afi fengu jólagjöfina, talandi um að
fá að opna pakkana snemma! Ég fæ ekki einu sinni að opna eitt kvikindi
fyrir mat á aðfangadag. Enda er það ekkert skemmtilegt lengur ... Maður
var alltaf svo spenntur þegar maður var lítill. Í seinni tíð verð ég
alltaf rólegri og rólegri yfir þessum jólum ... Ég er semsagt ekki mikið
jólabarn en það stendur kannski til bóta þegar maður er búinn með skóla
og þarf ekki lengur að vera í prófum í desember, bara í stressi. :D
Gangi mér vel í prófinu og öllum hinum líka!
Sent með
GSMbloggi Og Vodafone