Viltu koma með mér á djammið um mitt ár 2007? Ef allt gengur að óskum þá verður algjört reykingabann á veitingastöðum samþykkt í vetur og meira en 80% þjóðarinnar (skv. reyklaus.is), þeir sem reykja ekki, fá loksins að skemmta sér í friði frá reykmettuðu loftinu og þessi ósýnilega lína milli reyklausa og reyksvæðisins verður ekki lengur til.