Alveg er það fyndið þegar við hittum frænda hennar Beggu (hnerr) frá Bandaríkjunum að við lendum alltaf í einhverju geimi.
Síðast þegar við hittum hann á öldurhúsi í Glæsibæ þá var einhverjum gafferteipuðum gæja hent út úr bíl á ferð og hann neitaði að láta losa sig þartil kærastan hans kom, sem hann var víst að sýnast fyrir ... fréttum við seinna!
Nú er frændinn aftur á landinu og við hittum hann á þeim víðfræga stað Players í Kópavogi. (sjúg) Þegar við fáum okkur sæti hangir einhver 66°N klædd ógæfukona yfir okkur. Fær sér svo sæti á næsta borði en kemur fljótlega til okkar aftur og biður um sígarettu. "Nei, við bara reykjum ekki ..." Því miður fyrir hana, þá biður hún frændann um sopa af bjórnum og hann alveg "Neinei, þetta er minn bjór" í mestu kurteisi. (NB konan er ekki alveg heil) "ÞIÐ ÆTTUÐ BARA AÐ LÆRA KURTEISI, KURTEISI BORGAR SIG." Sigrún systir beint á barinn og segir eiginlega ekki neitt við afgreiðslustúlkuna heldur segir hún bara "EKKI AFTUR! Ég hringi á lögguna ..."
Konan alveg brjáluð strunsar út með látum og skellir á eftir sér! Sem betur fer bílinn minn heill þegar við komum út!