1. Ég tek það mjög alvarlega að vera klukkaður þó að ég hati keðjubréf. Ég var alltaf gæinn sem eyðilagði ópalkeðjuna og sendi keðjuemail oft bara beint til baka á þann sem sendi. En sumir vita ekki að þegar maður er klukkaður á maður að segja tilgangslausar staðreyndir. Þeir fara að segja frá hvað því hvað þeir elska hinn og þennan en ekki ég. Ég ætla að segja eitthvað tilgangslaust. Hitt vita allir!
2. Ég er forfallinn aðdáandi Lagnafrétta í Fasteignablaði Morgunblaðsins. Finnst fátt skemmtilegra en að lesa um vatnslausar pissuskálar, stíflaðar skólplagnir og fleira í þessum pistlum sem eru oft á tíðum þrælfyndnir.
3. Ég er með fæðingarblett á lærinu sem er eins og önd í laginu. Upphaflega var hann tveir fæðingablettir en svo fékk á sár á milli þeirra og þegar það gréri varð sárið að fæðingarblettaklessu sem er hálsinn á öndinni.
4. Ég elska kannanir, finnst agalega gaman þegar Gallup hringir og legg mig fram við að svara. Samt finnst mér alltaf skemmtilegast að pæla í vinnunni á bakvið könnunina og hvers vegna hún spyr "svona en ekki svona" og afhverju maður má aldrei vera hlutlaus og verður að segja frekar eða mjög.
5. Ég beið í röð eftir miðum á Foo Fighters frá miðnætti til tíu um morguninn við Skífuna á laugardeginum. Ekki af því að mig langaði á tónleikana heldur vegna þess að Beggu langaði og Gunnzi var að fara í röðina. Begga svaf alla nóttina, við Gunnzi náðum að horfa á eina bíómynd í tölvunni og svo varð hún batteríslaus og það varð held ég aldrei uppselt.
Ég klukka Gumma, Gunnza, Gunnar Þór, Unnar bekkjarbróðir og Anítu systur mína.