Nú er ég í þessum eina tölvutíma, WebCT kennsla sem er eiginlega skólastofan mín þessi fjögur ár. Vefsíða með námsgögnum þar sem ég get líka spjallað við samnemendur og svona. Ég er búinn að nota þetta í mánuð og nú er verið að kenna okkur á þetta. Of seint fyrir mig, ég er búinn að læra á þetta ... Mestallt allavegana!
Verð í skólanum í dag, á morgun og hinn. Svo þarf ég að vinna allt upp á fimmtudaginn sem ég er búinn að skrópa í í vinnunni! :(

