Ég býð mig hérmeð fram til Alþingis næstkomandi vor. Það eina sem ég ætla að gera á þingi er að lögleiða það að sparka í bíla og/eða rispa þá sem leggja ólöglega.
Ég skil ekki afhverju sumir leyfa sér alltaf að leggja asnalega og ólöglega þó það séu hundrað stæði laus, þau eru bara smá spotta frá innganginum og liðið er kannski að "flýta sér".
Ég legg metnað minn í það að leggja. Fer meira að segja stundum út og kíki hvort ég sé ekki innan línanna. Svo er ég drullu góður í að bakka í stæði. Staðsetja afturhjólið á hinum bílnum samsíða aftursætinu, leggja einn til tvo og hálfan á stýrið og bakka og snúa stýrinu til baka í leiðinni. Klikkar ekki!