ég hef ekki verið mikið í glasinu undanfarið, fyrir utan það hvað ég er búinn að vera lítið í tölvunni! búið að vera klikkað að gera. carnival í öldunni í gær, var í vinnu frá 9 um morgunin til 1 um nóttina ... reyndar ekki allan tímann uppi í öldu. var að skutlast með konfektkassa út um allan bæ fyrir bankann hans pabba líka!
svo er bara útskrift á morgun. uss hvað það verður gaman, ætla ásamt félögum mínum í stúdentakjallarann annað kvöld eftir veislu ala mamma kl. 18.00 á morgun. aðeins fyrir boðsgesti, húsið rúmar ekki svo marga ... ég á reyndar eftir að sjá að allt þetta fólk komist fyrir! það er allavegana pláss fyrir beggu mína og þá líður mér vel!
jæja, nú er það bara jólamatur með starfsfólkinu í öldunni og svo colplay í höllinni ... begga krútt keypti miða og bauð mér! hún er svo mikið yndi!