Eeen... Góð blanda af klósettpappír (áhrif frá Gumma) og söng á eftir að redda árshátíðinni í Kennó í kvöld. Tómstundabraut, 4. misseri, á eftir að slá í gegn.
Búinn að vera í lotu í skólanum; vænn skamtur af öldrun, félagsfræði og verkefnum getur ekki skemmt fyrir góðri skemmtun á Breiðvangi í kvöld. Fyrst matur (veit ekki hvað og flestir eiga ekki eftir að muna hvað þeir fengu á morgun) og skemmtó (Aldís og klósettpappír), svo ball með Milló (kemur Páll Óskar í hvíta gallanum?). Set myndirnar á plássið þegar þetta er afstaðið.
þú vilt ekki leyfa mer að klippa þig :(
Nei, kannski þegar ég er búinn að sjá að þú ert góð í því
Sendu inn athugasemd
<< Heim