En netið hefur ákveðnar hugmyndir um Skorradalinn og vatnið sjálft.
"Í Skorradal er vatn sem heitir Skorradalsvatn. Það er um 16 km langt og víðast um 1 km á breidd. Vatnið er 14,3 km og mesta dýpi þess 60 km. Þar er líka skógur. Ófreskja er talin vera í Skorradalsvatni. Það er stór ormur." (Hofstaðaskóli 2004)
"Fitjá úr Eiríksvatni rennur í það og Andakílsá er afrennsli þess. Þegar Andakílsárvirkjun var byggð, hækkaði yfirborð vatnsins vegna stíflugerðar. Mikið er af bleikju í vatninu, en mest af henni er fremur smár fiskur, um og innan við eitt pund. Talið er, að vatnið jaðri við að vera ofsetið, en þó er fiskurinn í þokkalegum holdum." (Nordic Adventure Travel 2005)
Hér er svo kort, en bústaðurinn sem við erum í ku vera innar en Hvammur. Í landi Vatnsenda, svæði 1 og bústaðurinn nr. 15 held ég.
Svo er þetta skemmtilega kort af Skorradal á nágrenni.
Og hér eru upplýsingar um bústaðinn.
Sendu inn athugasemd
<< Heim