Ég er hálf slappur bloggari, eiginlega bara ömurlegur. Tók mig reyndar saman í andlitinu og bloggaði nær daglega, bara ekki á þessari síðu.
Var semsagt með 22 ungmenni í hópferð í Danmörku, við fararstjórarnir settum upp heimasíðuna
unginorden.blogspot.com þar sem foreldrar gátu fylgst með hvað börnin þeirra voru að bralla. Aðsóknin kom okkur verulega á óvart en flettingarnar voru næstum því 1000.
En nú er ég kominn heim, búinn að vera veikur síðan og er fluttur í nýtt hús. Gengur ekkert að taka upp úr kössunum sökum slens, þetta fer vonandi að eldast af mér. Læknirinn segir að ég verði veikur í 7-10 daga, það er bara of stór hluti af lífi mínu.