Get ekki verið meira sammála nokkrum sem þar mæltu og útnefndu Kvöldþátt Guðmundar Steingrímssonar flopp ársins. Sá ekki einu sinni atriðið þegar Barði í Bang Gang gekk út í beinni útsendingu. Ég sá reyndar fyrstu niðurtalninguna í Kvöldþáttinn en slökkti svo strax og fór að gera eitthvað annað.
Sirkus lofar samt góðu. Við sjáum hvað gerist með nýju íslensku þættina á nýju ári. Verst að maður hafði ekki tíma til að gera pilot fyrir þá um daginn og vera með.