Afhverju kann Bond ekki endurlífgun? Hann hefði getað bjargað mannslífi hefði hann bara haldið fyrir nefið, opnað öndunarveginn með því að halla hausnum aftur og blásið svo ... og hvað var málið með þetta Hasselhoff-hjartahnoð? Auli!
Auðvitað á að sameina Kennaraháskólann Háskóla Íslands eftir að ég útskrifast. Það er alltaf þannig, með allt nám sem ég tek ... það breytist um leið og ég er búinn með það!
Jólakötturinn fær ekki að bragða á mér í ár því ég keypti mér jólajakkaföt í gær. Hef ekki farið í jakkaföt í langan tíma ... líklega síðast á árshátíð Hafnarfjarðarbæjar. Það er eitthvað annað en sumarið sem ég vann í banka. Þá var ég alltaf í jakkafötum. Þá var maður líka töff kall!