Ég held ég láti græða álpappír í augnlokin á mér. Ég má ekki sjá minnsta sólarljós á morgnanna þá vakna ég og get ekki sofnað aftur og batterísljósið á tölvunni minni heldur stundum fyrir mér vöku á nóttunni ... Ég sem er með trérimlagardínur og hnausþykkar gardínur fyrir þeim og alt. Hvað er að ske?
þetta er einmitt góð ástæða fyrir því að GEYMA TÖLVUNA FRAMMI á nóttunni.. Maður á ekki að sofa með svona rafmagnstæki nálægt sér... bzzzbrrrbmmm.. fucking læti og jónir svífandi um allt.. Hrmph..
æææ þú ert bara að verða gamall Andi minn. þá gerist þetta víst. :)
Það eru ekki jónirnar af tölvunni, heldur ljósin framaná henni!
Hefur það eitthvað með aldur að gera hvað sólin er óþolandi?
Sendu inn athugasemd
<< Heim