Sundlaug Garðabæjar veit ekki alveg hvort að hún sé sundlaug eða heitur pottur. Fór og synti nokkrar ferðir um daginn og á leiðinni var ýmist sjóðandi heitt eða ískalt. Minnti um margt á gamla Bláa lónið þar sem maður var á eigin ábyrgð ef maður fór yfir appelsínugulu línuna, þar gat orðið mjög heitt.
Sundlaugin í Garðabæ var nú ekki svo heit, en hitabreytingarnar voru hálf eitthvað ... á mis.
ps. Kona um fertugt heiðraði mig með nærveru sinni í g-strengs bikiní. Ég verð ekki samur maður eftir það ...
var hún nokkuð með bandakandís?
GeeVee
Hvað skyldi það vera? Ój, nei ... ég held ég hafi skilið þetta. Svona eins og á lömbunum?
Sendu inn athugasemd
<< Heim