Eistun á mér gengu upp í gær og ég byrjaði á túr. Ég og 4 kellingar ætluðum að horfa á síðasta þáttinn af Idol í gær, jújú ... gerðum það en fórum svo á Gaukinn þegar líða tók á kvöldið. Dyravörðurinn þar alveg grunlaus um að ég hefði gerst kona um kvöldið og sagði að ég ætti að borga inn, stelpurnar löngu farnar upp og ég alveg ... "En þær fóru upp!?" Hann: "Það er frítt inn fyrir stelpur!"
Þoli ekki svona hallærislegt drasl! Tala við jafnréttisstofu eftir helgi. Þetta er eini fimmhundruðkallinn sem Gaukurinn á eftir að græða á mér ... ever!
... þetta er nú það minnsta sem við stelpurnar eigum skilið.. fengum ekki að kjósa fyrr en á 20. öld...
Sendu inn athugasemd
<< Heim