Var semsagt að koma til beggu um miðja nótt, eftir að hafa verið að
vinna til eitt uppí öldu. Anyway, það er svona STOP merki efst í
einhverri brekku á leiðinni til hennar beggu minnar. Ég gleymdi því í
smá stund að það væri svona STOP merki þarna og brunaði bara beint til
vinstri og áfram til beggu. (Blá blikkandi ljós) Shit, gat verið. Vá, ég
er oft stöðvaður af löggunni ... sjaldnast í einhverjum tilgangi fyrr en
nú. Löggan: "Varðandi stöðvunarskylduna þarna áðan, þú veist að það á að
stoppa alveg." Ég (fullur iðrunar) "Já, ég veit!" Löggan: "Þú manst það
næst er það ekki?" Ég játti því ... og fékk að fara heim að lúlla!
Sent með GSMbloggi Og Vodafone
<< Heim