Allavegana, Aníta fékk sér hamstur í gær! Þvílíkt krútt, nema ... Hann vakir víst á nóttunni og sefur á daginn ... eins og núna, akkúrat þegar mig langar að leika við hann! Samt er þetta sniðugt skóladýr ... Ef hann vakir ekki á nóttunni! Þ.e. sefur þegar þú ert í skólanum og vakir seinnipart og kvöld! Snilld ... allir að fá sér hamstur í fiskó!
Svo eru það bílakaupinn ... Nú er ég búinn að bíða í viku eftir að fara sjá bílinn sem ég á að kaupa mér. Rauður VW Polo 1400 - 5 dyra kaggi! Eins gott að hann er flottur, kallinn sem á hann vill ekki sýna mér hann fyrr en hann er búinn að þvo hann og bóna og ryksuga og pússa og svona! Vonandi fæ ég að sjá hann í kvöld!
<< Heim