Manchester tónleikar Icelandair voru spes. Þegar maður mætti voru þetta ekki tónleikar lengur heldur tónlistarhátíð til TÓLF! Sem betur fer fékk maður armband svo maður gat valsað inn og út. Stúkan var lokuð, hefði brjálast hefði ég borgað fullt verð fyrir að sitja á bekkjunum aftast. Svo dróst þetta allt saman og við vorum komin heim kl. 2.
Til eru fræ með Benna Hemm Hemm var án efa lag kvöldsins - frekar geggjað hjá þeim. Badly Drawn Boy var samt bestur. Hefðum varla getað verið nær, nema bara á sviðinu. Við Begga söknuðum þess samt að heyra ekki lagið Exit stage right úr About a Boy ... Hann hefði alveg getað skotið því inn á milli laga, ég meina það er bara 21 sekúnda.
kannski ágætt að taka það fram að húsið opnaði kl 17.30
kannski ágætt að taka það fram að húsið opnaði kl 17.30 :( þetta var bara maraþon
Sendu inn athugasemd
<< Heim