Þeir riðu á kjörstað í gamla daga en ég fór á Vespunni. Já, pabbi minn fékk þá snilldarhugmynd að kaupa sér vespu um daginn sem maður er búinn að snattast á hingað og þangað síðan. Systir mín fékk svo próf á hana í dag þannig að það er spurning hvað ég fæ hana mikið lánaða núna.
Annars er líklegt að ég fari að selja hitt farartækið mitt, rauðan fólksvagn Gólf með fastanúmerið DU-387. Umsóknarferlið um skólavist úti skotgengur og jafnvel eru íbúðarmálin í höfn. Það er óþarfi að eiga bíl þegar maður hefur lestarnar í Köben.
Sendu inn athugasemd
<< Heim