Það eru litlir einfaldir hlutir, eins og að kalla nafnið manns í staðinn fyrir eitthvað númer, sem gera Hamborgarabúllu Tómasar að frábærum hamborgarastað. American Style er ekki ennþá búinn að fatta það en fattaði hinsvegar að það borðar enginn tómata og setur papriku á hamborgarana sína og ég virði þá fyrir það, þó ég borði ekki papriku - hún er betri en tómatar.
vó hvað eg skildi ekki þessa færslu... en ef þú vilt vita hvers vegna tommaborgarar eru betri þá er það grillbragðið
Lestu hana aftur
bara nútíð og þátíð til skiptis.. ruglandi... ertu að segja að american style hafi hætt með tómata og sett papriku í staðinn? og ef þú borðar ekki eitthvað þá ertu varla með skoðun á því hvort það er betra en eitthvað annað...
ég hef smakkað það ...
Sendu inn athugasemd
<< Heim