Keypti mér LCD Philips flatskjá í dag. Gæinn í Elko sagði við mig stoltur að hann ætti 6 tæki þegar ég sagðist ætla að kaupa. Þegar við komum á lagerinn var það hinsvegar ekki raunin, lagerguttinn fann ekkert tæki eftir langa leit og eftir að hafa farið aftur uppí búð fengum við það staðfest. Elko átti ekkert tæki handa mér ... en góðu fréttirnar eru að tækið er í pöntun og kemur eftir helgi, og þá á ég flatskjá.
Sendu inn athugasemd
<< Heim