Ég var alveg með massívan reiðilestur á tungunni þegar ég kom í Elko í gær að kría útúr þeim 5000 kall. Forsagan er sú að ég keypti mér sjónvarp á sunnudaginn sem var ekki til á lager fyrir það fyrsta, en var svo auglýst 5000 krónum ódýrara á mánudaginn og ég alveg brjál. Fór í Elkó og ætlaði að segja þeim til syndanna en: "Ekkert mál - Þú færð þetta endurgreitt!" Fékk meira að segja borgað til baka í peningum sem er mjög gott. Ég ætla að kaupa ísskápinn minn Elko!
En tækið var til á lager í gær og var í gangi í allt gærkvöld. Gekk reyndar frekar illa að festa það uppá vegg svo borðstandurinn verður að duga í bili. Eins og er standa tvær 12 tommu skrúfur útúr veggnum þar sem sjónvarpið á að vera, þær voru ekki alveg að gera sig. Fyndið samt að samanlagt eru þær næstum því stærri en sjónvarpið! ;)
Sendu inn athugasemd
<< Heim