En svo gærdagurinn, ég var ræstur klukkan 09.52 í kvikmyndatöku. Gunni B, maðurinn sem kenndi mér allt sem ég kann um stuttmyndir, er að gera stuttmyndina Karamellur starring Jón Gnarr, Marikó Margrét, Elma Lísa, Gísli Snær, Tóti og litla stelpan Tóta fer með aðalnúmerið. (Framleidd af Þeim tveimur!) Agalega sniðug mynd og ég var eitthvað að aðstoða á setti í gær ... Var titlaður klappari eða Forest, allt eftir því hvort ég þurfti að hlaupa úr mynd eftir klapp eða ekki ... Mæli með því að vinna við að búa til bíó!
<< Heim