
Velkomin á tribute síðuna mína um U2! Ég heyrði mitt fyrsta lag með U2 árið 1984! Ég sat fyrir framan Skonrokk í ríkissjónvarpinu og allt í einu var ég hrifinn áfram af lagi sem hljómaði eitthvað allt öðruvísi en flest annað sem í boði var á þeim tíma. Lagið var "Two Hearts Beat As One" af plötunni WAR. Ferskt og melódískt rokk barst mér til eyrna og augna. Ég er svo heppinn að eiga eldri bróður sem hefur svipaðan tónlistarsmekk og ég og ekki leið á löngu þar til WAR var komin í plötuskápinn hans! Eins og yngri bróður sæmir stalst ég þangað þegar tækifæri gafst og hlustaði á hana upp til agna! Og ég bara varð að heyra meira. Fljótlega komst ég yfir fyrstu tvær plötur sveitarinnar og þær ollu mér síður en svo vonbrigðum heldur þvert á móti. Þar með var ísinn brotinn og síðan hefur U2 verið mín uppáhalds hljómsveit þó að auðvitað sé ýmislegt annað á fóninum hjá mér :-) Á þessum vefsíðum langar mig að koma fróðleik og pælingum á framfæri um Bono, The Edge, Larry og Adam sem hafa verið stór partur í mínu lífi frá 12 ára aldri :-)
Það sem hér birtist er eingöngu mér og vonandi öðrum til gamans gert og sem áhugamál! Myndirnar eru héðan og þaðan, t.d. af U2.com, sem er auðvitað opinber heimasíða U2, einnig af atu2.com sem er "fansíða", Rolling Stone og fleiri stöðum. Tékkið á tenglana til að sjá fleiri góðar síður um U2. Þó ekki sé það nú beinlínis eftir lagabókstafnum að afrita og birta slíkar myndir, en einhverjar eru nú örugglega háðar höfundarrétti, vona ég að mér fyrirgefist það :-) svona tilgangsins vegna, en hann er eins og áður sagði alls ekki til að hagnast eða auglýsa eitt eða neitt, heldur aðeins til fróðleiks og skemmtunar. Textinn um sögu strákanna í bandinu og um hljómsveitina sjálfa er að mestu þýðing og útdráttur sem ég gerði úr bókinni The Unforgettable Fire eftir Eamon Dunphy sem kom út hjá Viking Penguin forlaginu í Bretlandi árið 1987. Sú bók er alveg skyldulesning fyrir hvern U2 aðdáanda og ætti að vera hægt að nálgast hana á einhverri vefversluninni, t.d. Amazon eða eBay. Höfundurinn, Eamon Dunphy, er fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og hefur gefið út nokkrar bækur um sögulegt efni, þar á meðal ævisögu Roy Keane, fótboltastjörnu hjá Manchester United. Vinsamlegast sýnið þá sjálfsögðu kurteisi að geta heimilda ef vísað er í textann.
Að auki er slatti af efni úr bókinni U2-The Best Of Propaganda sem er samansafn úr tímaritinu þeirra, Propaganda, síðastliðin 20 ár. Propaganda tímaritið, sem fyrst hét U2 Magazine, kom fyrst út í nóvember 1981 og bar titilinn U2 October. U2 Magazine taldi sextán eintök frá nóvember 1981 til sumarsins 1985 þegar nafnið breyttist í Propaganda. Propaganda Volume 1 telur þrjátíu eintök og spannar tímabilið frá hausti 1985 til vetursins 1999. Í upphafi nýrrar aldar, árið 2000 byrjar svo nýtt tímabil í sögu Propaganda þegar Volume 2 hefur göngu sína. Nú svo er hitt og þetta fengið úr þeim bókum og því efni á vefnum sem ég hef komist yfir. (Sjá bækurnar hér til hliðar).
| Plötur og geisladiskar | Smáskífur | DVD og VHS | Bækur ofl. |
|---|---|---|---|
| Boy - CD og vinyl | Gloria - 7" vinyl - UK útgáfa | Under A Blood Red Sky - VHS | The Unforgettable Fire-The Story Of U2 - Höf: Eamon Dunphy - 1987 Viking Penguin |
| October - CD og vinyl | Two Hearts Beat As One - 7" vinyl - UK útgáfa | Rattle And Hum - VHS og DVD | U2-The Best of Propaganda - 20 years of the official U2 magazine |
| War - CD og Vinyl | Pride (In The Name Of Love) - 12" vinyl | U2 - Achtung Baby, the videos, the cameos and a whole lot of interference from ZOO TV - VHS | Bono on Bono - Conversations with Michka Assayas - Höf: Michka Assayas - 2005 Hodder |
| Under A Blood Red Sky - CD | The Unforgettable Fire - 12" vinyl | U2 - The History Mix - DVD | Bono Um Bono - samtöl við Michka Assayas - íslensk þýðing Orra Harðarsonar |
| The Unforgettable Fire - CD og Vinyl | With Or Without You - 12" vinyl | The Best Of 1990-2000 - DVD | U2 by U2 - U2 Limited 2006 - Harper Collins |
| Wide Awake In America - CD | All I Want Is You - 12" vinyl | U2 - Go Home-Live In Slane Castle - DVD | U2 Show - höf: Diana Scrimgeour - Orion books |
| The Joshua Tree - CD og Vinyl | One - CD single | Elevation 2001 - U2 Live In Boston - DVD | Bono, In The Name Of Love - höf: Mick Wall 2006 - André Deutsch |
| Rattle And Hum - CD og vinyl | Stay (Faraway, So Close) - CD single | Vertigo 2005 - U2 Live from Chicago - DVD Special Edition | |
| Achtung Baby - CD | Even Better Than The Real Thing - CD single | U2 - The Joshua Tree - DVD The story of the making of The Joshua Tree | |
| Zooropa - CD | The Fly - CD single | U2 - An Unforgettable Journey - DVD - An unauthorised documentary film | |
| Pop - CD | Please - CD single | U2 - The Document - U2 interview cd and dvd documentary - 2005 Chrome Dreams | |
| The Best Of 1980-1990 - CD | If God Will Send His Angels - CD single | ZOOTV - Live from Sidney - DVD special edition | |
| All That You Can Leave Behind - CD | Elevation - CD single | U218 Videos - DVD | |
| The Best Of 1990 - 2000 - CD + B-sides | Beautiful Day - CD single | PopMart - Live from Mexico City - DVD | |
| How To Dismantle An Atomic Bomb - Special Ed. CD+DVD+Booklet | Vertigo - CD single | ||
| U218 Singles - DVD edition | Sometimes You Can´t Make It On Your Own - DVD single | ||
| Sometimes You Can´t Make It On Your Own - CD single | |||
| The Million Dollar Hotel | City Of Blinding Lights - CD single | ||
| Passengers: Original Soundtracks 1 | All Because of You - CD single | ||
| The Saints Are Coming - CD single | |||
| Window In The Skies - CD single | |||
| Window In The Skies - CD Maxi single |