1. Kaflar:
  2. Boy
  3. October
  4. War
  5. Under A Blood Red Sky
  6. The Unforgettable Fire
  7. Wide Awake In America
  8. The Joshua Tree
  9. Rattle And Hum
  1. Achtung Baby
  2. Zooropa
  3. Pop
  4. The Best of 1980-1990
  5. All That You Can´t Leave Behind
  6. The Best of 1990-2000
  7. How To Dismantle An Atomic Bomb

Plöturnar  >>> Smáskífur | DVD

Boy

Boy coverFyrsta breiðskífa U2 kom út í Október árið 1980 og heitir Boy. Á henni eru 11 lög og þótti hún vera besta frumraun hljómsveitar í langan tíma. Melody Maker sagði U2 ekki aðeins hafa staðið undir væntingum miðað við tónleikahald þeirra heldur miklu meira. Aðrir sögðu þetta vera eina bestu frumraun allra tíma, í flokki með Patti Smith, Roxy Music og Velvet Underground. Að vera líkt við Velvet Underground þótti strákunum einkar ánægjulegt þar sem Lou Reed, forsprakki hennar var ein af fáum "rokkhetjum" Bonos. Eina neikvæða umfjöllunin sem Boy fékk hafði ekkert að gera með tónlistina heldur umslagið á plötunni. U2 vildi sýna þar sakleysi og birti því mynd af dreng berum að ofan horfandi sakleysislega í myndavélina, enginn titill og ekkert hljómsveitarnafn, það þótti með því spilað djarft með fyrstu plötu hljómsveitar. Í Bandaríkjunum, þar sem hún kom út í Mars 1981, komu strax fram ásakanir um að U2 væri að gefa barnaklámi undir fótinn en ekkert gat verið fjarstæðukenndara. "Við settum hann á umslagið vegna þess að hann er snjall strákur og stundum velti ég því fyrir mér hvernig framtíð hans muni verða, og hvernig mun okkar framtíð verða?" Þannig útskýrði Bono umslagið þegar að honum var sótt vegna útlits þess. Engu að síður breyttu Warner Brothers útliti hennar fyrir markaðinn vestra, þar var aðeins mynd af hljómsveitinni á albúminu. Steve Lillywhite stjórnar upptökum.

Mínar hugrenningar um Boy:

Ég get ekki annað en verið sammála þeim sem segja að Boy sé snilldarfrumraun hljómsveitar. fyrsta lag plötunnar gefur tóninn; með gítarriffi The Edge. Lagið hefur verið nánast fastur liður á tónleikum U2 og var fyrsta smáskífa hljómsveitarinnar. Textann má túlka sem ætlun höfundarins að fylgja sínum trúarskoðunum fast eftir eða kannski í Bonos tilfelli túlkun hans á eftirsjánni yfir að hafa ekki eytt meiri tíma með móður sinni Irisi. Hennar ást á honum var skilyrðislaus; "ef þú gengur í burtu mun ég fylgja." Ást Guðs er einnig skilyrðislaus eins og fram kemur í lok textans: " I was looking through the window, I was lost, I am found." Merki um eftirsjá en samt sem áður bjartsýni. Out Of Control samdi Bono á 18 ára afmælisdaginn sinn og það lag fjallar einnig um söknuð til móður hans. Hann vaknar á afmælisdaginn sinn og eitthvað vantar. Honum líður eins og hann sé stjórnlaus. Mér finnst Out Of Control, Stories For Boys og Another Time Another Place vera bestu lögin á plötunni en ekkert þeirra er slakt, hin koma öll fast á hæla þessarra þriggja!

Lagalisti:
  1. I Will Follow
  2. Twilight
  3. An Cat Dubh
  4. Into The Heart
  5. Out Of Control
  6. Stories For Boys
  7. The Ocean
  8. A Day Without Me
  9. Another Time Another Place
  10. The Electric Co.
  11. Shadows And Tall Trees

Efst á síðu

October

October coverÖnnur plata U2 leit dagsins ljós í Október árið 1981 og heitir October. Strákarnir voru staðráðnir í að láta hana ganga upp, það er þekkt stærð í rokkheiminun að erfitt er að fylgja eftir fyrstu plötu sem gengið hefur vel. October reyndist vera platan sem kom þeim á kortið á Bretlandi, fyrir hana fengu þeir sína fyrstu silfurplötu, fyrir meira en 60.000 eintök seld. Fyrstu tvær smáskífurnar, Fire og Gloria, náðu að vísu ekki sérstökum árangri, en sú þriðja, titillagið October varð fyrsta smáskífa U2 til að komast á topp 20 listann í Bretlandi, komst í nr. 11. Bono minnist á það að October var tekin upp í miklum flýti, nánast skrifuð fyrir framan hljóðnemann í stúdíóinu. Samt er einhver friður og yfirvegun yfir plötunni þrátt fyrir alla pressuna. Steve Lillywhite stjórnar upptökum á October, líkt og á Boy.

Mínar hugrenningar um October:

October var nokkuð lengi að venjast, en svoleiðis er það einmitt mjög oft með bestu plöturnar og þær sem maður hlustar aftur og aftur á og fær aldrei leið á. Bono lenti í því að textunum hans sem hann var búinn að hripa niður fyrir plötuna var stolið skömmu áður en þeir félagar héldu í hljóðver, þannig að hann þurfti að einhverju leyti að endursemja þá um leið og tekið var upp. Það setti auðvitað mikla pressu á allt ferlið en afraksturinn var ekki slæmur. Margir U2 aðdáendur telja þetta vera vanmetnustu plötu sveitarinnar. Mér finnst bestu lögin vera Rejoice, Tomorrow, I Fall Down og With A Shout (Jerusalem).

Lagalisti:
  1. Gloria
  2. I Fall Down
  3. I Threw A Brick Through A Window
  4. Rejoice
  5. Fire
  6. Tomorrow
  7. October
  8. With A Shout (Jerusalem)
  9. Stranger In A Strange Land
  10. Scarlet
  11. Is That All?

Efst á síðu

War

War cover"War breaks out" á síðasta degi febrúarmánaðar árið 1983. Steve Lillywhite er enn við stjórnvölinn (fyrir utan The Refugee, þar stjórnar Bill Whelan upptökum) og var þar með að brjóta þá vinnureglu að gera aldrei meira en tvær plötur í röð með hverri hljómsveit. Island útgáfan var svo taugastrekkt yfir þekktasta laginu á plötunni, Sunday Bloody Sunday, að þeir sannfærðu strákana um að gefa það ekki út sem fyrstu smákífu eins og áætlað var, heldur tóku frekar þann kost að gefa út New Years Day. Reyndar vill svo skemmtilega til að lagið kom út á smáskífu þann 1. janúar 1983, sama dag og stjórnvöld í Póllandi afléttu herlögum eftir baráttu Lech Walesa og samtaka hans, en lagið er innblásið af þeirri baráttu. War er líka fyrsta plata U2 sem komst á topp breska plötulistans og seldi meira en tvær hinar fyrri til samans!

Mínar hugrenningar um War:

War er og verður alltaf í sérstöku uppáhaldi hjá mér, auðvitað af því að á henni er að finna fyrsta lagið sem ég heyrði með U2. Á War er líka að finna hvað þekktustu lög sveitarinnar, algjörar ódauðlegar perlur sem alltaf má heyra á tónleikum þeirra. Nægir að nefna Sunday Bloody Sunday og New Year's Day. Platan er að mínu mati afar massíf og erfitt að taka út bestu lögin, þau eru öll frábær. En til að segja eitthvað þá má nefna Sunday Bloody Sunday, Red Light og Drowning Man.

Lagalisti:
  1. Sunday Bloody Sunday
  2. Seconds
  3. New Year´s Day
  4. Like A Song...
  5. Drowning Man
  6. The Refugee
  7. Two Hearts Beat As One
  8. Red Light
  9. Surrender
  10. "40"

Efst á síðu

Under A Blood Red Sky

Under A Blood Red Sky coverEinstaklega vel heppnuðu ári hjá strákunum fagnað með tónleikaplötu í nóvember 1983 frá War túrnum. Reyndist snilldarútspil hjá U2 því að platan rokseldist og kostnaðurinn við að gera hana var aðeins brot af því sem kostar að gera stúdíóplötu og hún var líka mun ódýrari út úr búð. Hún skaut líka "bootleggurum" ref fyrir rass en ólöglegar upptökur af U2 tónleikum voru nú farnar að seljast vel! Hún komst í nr. 2 á lista í Bretlandi með yfir eina milljón eintaka og skyndilega voru strákarnir farnir að græða "alvöru" pening. Eini sérstaki kostnaðurinn sem hlaust af plötunni var sú ákvörðun Bono um að láta brot úr lagi Stephens Sondheim, Send In The Clowns, fylgja með í útgáfu þeirra af Electric Co. Það kostaði 50.000 punda sekt fyrir höfundarréttarbrot og í seinni útgáfum af plötunni var búið að fjarlægja þessar alræmdu línur úr laginu!

Mínar hugrenningar um Under A Blood Red Sky:

Klassa tónleikaplata en þó verður að segja að hún virkar enn betur þegar maður hlustar og sér hana, þ.e.a.s. vídeóið er enn betra, U2 hefur alltaf verið frábær á tónleikum og alla tíð lagt aðaláherslu á að vera með gott "show" fyrir sína dyggu aðdáendur.

Lagalisti:
  1. Gloria
  2. 11 O´Clock Tick Tock
  3. I Will follow
  4. Party Girl
  5. Sunday Bloody Sunday
  6. The Electric Co.
  7. New Year´s Day
  8. "40"

Efst á síðu

The Unforgettable Fire

The Unforgettable Fire coverOktóber 1984 boðar nýja tíma. U2 með heiminn að fótum sér og nú eru nýir stjórnendur við upptökuborðið. Snilldarverk! Tekin upp í Slane kastala og Windmill Lane Stúdíó í Dublin. Strákarnir í erfiðu hlutverki að fylgja eftir alþjóðafrægðinni og velgengni War plötunnar. Þeir ákváðu að fara í aðra átt og fá til liðs við sig þá Daniel Lanois og Brian Eno til að stjórna upptökum. Sánd Slane kastalans er sérstakt og gefur plötunni nýja vídd í tónlist U2 og gaf fyrirheit um þann fjölbreytileika sem býr í þeim.

Mínar hugrenningar um The Unforgettable Fire:

The Unforgettable Fire var fyrsta nýja efnið sem ég heyrði með U2, var nýlega búinn að uppgötva Boy og October, og búinn að taka War inn í blóðrásina!! Sennilega nokkuð erfið plata að melta fyrir 13 ára ungling en ég hlustaði á hana upp til agna. Pride er auðvitað perlan á plötunni, lag sem bandið hefur lýst yfir að sé eitt þeirra best heppnaða. Í mínu uppáhaldi á plötunni eru líka Wire og Bad.

Lagalisti:
  1. A Sort Of Homecoming
  2. Pride (In the name of love)
  3. Wire
  4. The Unforgettable Fire
  5. Promenade
  6. 4th Of July
  7. Bad
  8. Indian Summer Sky
  9. Elvis Presley And America
  10. MLK

Efst á síðu

Wide Awake In America

Wide Awake In America coverAmeríka hefur alltaf heillað U2 og þá sérstaklega Bono. Hún líka tók þeim opnum örmum og hér eru tvö snilldarlög frá Unforgettable Fire túrnum ásamt tveimur aukalögum. Það eru aðeins fjögur lög á þessari plötu og því spurning hvort flokka eigi hana undir smáskífu eða breiðskífu, sennilega best að segja bara mini LP!!

Mínar hugrenningar um Wide Awake In America:

Efnið af The Unforgettable Fire plötunni þótti erfitt að spila á tónleikum en Bad og A Sort Of Homecoming á þessari plötu standa sko alveg fyrir sínu. Hin tvö eru líka ágæt og á tímabili var ég að vísu með Love Comes Tumbling í eyrunum allan daginn, það er einhver stemning yfir því sem er ómótstæðileg :-)

Lagalisti:
  1. Bad (Live)
  2. A Sort Of Homecoming (Live)
  3. The Three Sunrises
  4. Love Comes Tumbling

Efst á síðu

The Joshua Tree

The Joshua Tree coverMars 1987. Hvað er hægt að segja?! Gargandi snilld! The Joshua Tree var tekin að mestu upp heima hjá hljómsveitarmeðlimum, í aukaherbergi hjá Larry eða í stofunni hjá Adam. Að hafa þennan háttinn á var hugmynd frá Brian Eno og þótti gefast vel, einhver ný sköpunargleði leit dagsins ljós. Lokafrágangur fór svo fram í Windmill Lane hljóðverinu í Dublin undir dyggri stjórn þeirra Daniel Lanois og Brian Eno. The Joshua Tree hristi heiminn all verulega og fékk gríðarlega góða dóma. Plötubúðir í USA opnuðu á miðnætti útgáfudaginn til að uppfylla þá gríðarlegu eftirspurn sem nú var eftir nýju U2 efni og platan varð sú fyrsta frá bandinu til að fara á topp sölulistans í Ameríku. Salan ýtti líka undir sölu á öllum fyrri plötum þeirra og sendi þær allar á topp 40 listann. Í Bretlandi seldust 250.000 eintök fyrstu tvo sólarhringana! Joshua Tree færði líka U2 þann heiður að verða þriðja rokkbandið í sögunni, á eftir Bítlunum og The Who, til að koma á forsíðu Time tímaritsins undir fyrirsögninni: "U2: Rock´s Hottest Ticket. Rúsínan í pylsuendanum var svo auðvitað þeirra fyrstu Grammy verðlaun, Best rock performance by a duo or group fyrir I Still Haven´t Found... og einnig Album of the year fyrir Joshua Tree! Ekki slæmt það!!

Mínar hugrenningar um The Joshua Tree:

Að mínu mati besta platan með U2!! Mér finnst að vísu erfitt að halda því fram, en einhvern veginn hefur hún haft mest áhrif á mig af þeim öllum. Svo mikil áhrif að ég lét tattúvera Joshua Tree á handlegginn á mér :-)

Lagalisti:
  1. Where The Streets Have No Name
  2. I Still Haven´t Found What I´m Looking For
  3. With Or Without You
  4. Bullet The Blue Sky
  5. Running To Stand Still
  6. Red Hill Mining Town
  7. In God´s Country
  8. Trip Through Your Wires
  9. One Tree Hill
  10. Exit
  11. Mothers Of The Disappeared

Efst á síðu

Rattle And Hum

Rattle And Hum coverRattle And Hum er meira en bara plata eins og allir vita! Hér er á ferðinni heimild um rokkband sem rís til heimsfrægðar á seiglu og trú! The Joshua Tree túrinn, sá langstærsti hjá U2 til þessa dags var kvikmyndaður og ný lög fylgdu með á plötunni ásamt live útgáfum. Kvikmyndin var frumsýnd í Dublin í september 1988 og sjálf platan kom út nokkrum vikum seinna í október 1988. Allur ágóði af miðasölu frumsýningarinnar fór til heimilislausra og þó að aðeins 800 manns kæmust í salinn voru um 5000 manns fyrir utan bíóið í þeirri von um að sjá bandið koma á frumsýninguna. Fólkið átti líka eftir að hafa erindi sem erfiði því skyndilega birtust kapparnir og fluttu tvö lög live fyrir utan bíóið og endurtóku svo leikinn eftir sýningu! Gagnrýnendur tóku þó ekki létt á Rattle And Hum. Þeim fannst U2 vera komnir á hálan ís með því að fá til liðs við sig goðsagnir eins og BB King og flytja lög eftir Lennon/McCartney og Dylan. Fannst eins og nú væru U2 farnir að líta of stórt á sig! En markmiðið hjá U2 var ekkert í þá veruna heldur miklu fremur að fremja tónlist sem "aðdáendur" rokksins og þeirra goðsagna sem rokkið ól af sér. Einnig til að fara nýjar leiðir tónlistarlega séð með því að pæla í og kryfja gospel og ameríska þjóðlagatónlist. Þrátt fyrir misjafna dóma í pressunni gekk Rattle And Hum vel og toppaði sölulista beggja vegna Atlandshafsins og færði U2 fyrstu nr.1 smáskífuna í Bretlandi, Desire. Jimmy Iovine stjórnar upptökum.

Mínar hugrenningar:

Ég fylgi nú frekar aðdáendum heldur en gagnrýnendum varðandi Rattle And Hum! Mér finnst hún afar góð og myndin líka! Bestu lögin finnst mér vera Silver And Gold og All I Want Is You. Hún markar líka þáttaskil á ferli U2, á síðustu tónleikum Rattle And Hum ferðarinnar í Dublin tilkynnir Bono að nú þurfi U2 að taka pásu og "dream it all up again".

Lagalisti:
  1. Helter Skelter
  2. Van Diemen´s Land
  3. Desire
  4. Hawkmoon 269
  5. All Along The Watchtower
  6. I Still Haven´t Found What I´m Looking For
  7. Freedom For My People
  8. Silver And Gold
  9. Pride (In the name of love)
  10. Angel Of Harlem
  11. Love Rescue Me
  12. When Love Comes To Town
  13. Heartland
  14. God Part II
  15. The Star Spangled Banner
  16. Bullet The Blue Sky
  17. All I Want Is You

Efst á síðu

Achtung Baby

Achtung Baby coverAchtung Baby kemur út í nóvember 1991. Daniel Lanois og Brian Eno enn við stjórnvölinn og í kjölfar velgengni sinnar með Joshua Tree og Rattle And Hum fara þeir nú algerlega nýjar leiðir. Það munaði þó litlu að engar fleiri U2 plötur yrðu til því að þreyta og pirringur var í gangi í fyrstu upptökum á plötunni auk þess sem The Edge íhugaði alvarlega að hætta í bandinu, hann gekk í gegnum erfiðan skilnað skömmu áður og var að miklu leyti búinn að fá nóg. Bono náði að tala hann ofan af því að hætta en það var þögul vitneskja um það í stúdíóinu að ef þessi plata næði ekki að standa undir væntingum þá yrði þetta síðasta plata The Edge með U2! Til að bæta gráu ofan á svart var demo upptökum af plötunni smyglað útúr stúdíóinu og gefin út sem bootleg! U2 hélt þó áfram vinnunni með Eno sem aldrei fyrr og kannski var það dútlið á gítarinn hjá Edge sem bjargaði málunum! Þetta dútl varð að lokum að lagi sem allir þekkja í dag með U2: One!!!

Mínar hugrenningar um Achtung Baby:

Frábær plata! Það er bara þannig! Eftir að hafa lent í verulegum erfiðleikum og riflildum innan bandsins kemur upp úr krafsinu kraftmikil og nokkuð "svört" plata, algerlega nýr hljómaheimur. "The sound of four men chopping down the Joshua Tree" eins og Bono orðaði það og það tekst á snilldarmáta!

Lagalisti:
  1. Zoo Station
  2. Even Better Than The Real Thing
  3. One
  4. Until The End Of The World
  5. Who´s Gonna Ride Your Wild Horses
  6. So Cruel
  7. The Fly
  8. Mysterious Ways
  9. Tryin´ To Throw Your Arms Around The World
  10. Ultra Violet (Light my way)
  11. Acrobat
  12. Love Is Blindness

Efst á síðu

Zooropa

Zooropa coverZooropa kemur út í júlí 1993 og var skrifuð og tekin upp í pásum í ZooTV tónleikaferðinni sem fylgdi Achtung Baby. Hún er tekin upp í þremur stúdíóum í Dublin, Windmill Lane, Factory og Westland og í fyrsta skiptið er The Edge með í að stjórna upptökum, nokkuð sem virðist hafa góð áhrif á hið síbreytilega U2 sánd. Brian Eno og Flood stjórna annars upptökunum.

Mínar hugrenningar um Zooropa:

Átti góða "hlustunardaga" með Zooropa fyrst þegar hún kom út en svo fékk ég eiginlega smá leið á henni um tíma og sennilega verð ég að segja að hún lendir nú neðst á listanum hjá mér af U2 plötum!! En engu að síður eru perlur þarna inn á milli eins og til dæmis titillagið og Stay(Faraway, so close). Svo má ekki gleyma hinu stórgóða lagi The Wanderer með goðsögninni Johnny Cash :-) Dálítið sérstakt lag á U2 mælikvarða en sýnir bara enn og aftur sköpunargáfu þeirra!

Lagalisti:
  1. Zooropa
  2. Babyface
  3. Numb
  4. Lemon
  5. Stay (Faraway, So Close)
  6. Daddy´s Gonna Pay For Your Crashed Car
  7. Some Days Are Better Than Other
  8. The First Time
  9. Dirty Day
  10. The Wanderer

Efst á síðu

Pop

Pop coverKemur út í febrúar 1997. Enn og aftur koma U2 á óvart með algerlega nýrri tónlistarstefnu, nú danstónlist! Við takkana eru nú þeir Steve Lillywhite, Mike Hedges, Richard Stannard and Julian Gallagher. Pop inniheldur þó töluverðar U2 rætur eins og heyra má í lögum eins og Staring At The Sun og Gone.

Mínar hugrenningar um POP:

Hérna er á ferðinni vanmetnasta plata U2 að mínu mati hingað til. Hún fékk ekki sérstaka dóma og margir skríbentar vildu meina að nú hefði U2 selt sálu sína og gefið sig á vald markaðsaflanna. Ég get státað mig af því að hafa eignast hana degi áður en hún fór í sölu hér á landi, í gegnum félaga minn í plötuverslun fékk ég eitt eintak til að hafa með mér í mánaðartúr út á sjó!! Það var bara ekki hægt að fara án hennar :-)

Lagalisti:
  1. Discothéque
  2. Do You Feel Loved
  3. Mofo
  4. If God Will Send His Angels
  5. Staring At The Sun
  6. Last Night On Earth
  7. Gone
  8. Miami
  9. The Playboy Mansion
  10. If You Wear That Velvet Dress
  11. Please
  12. Wake Up Dead Man

Efst á síðu

The Best Of 1980-1990

The Best Of 1980-1990 coverÚtgáfudagur 2. nóvember 1998 og á Limited Edition 2.-9. nóv.

Mínar hugrenningar um 1980-1990:

Alveg kominn tími á safnplötu með þessari stærstu rokksveit samtímans og hefur örugglega kynnt sveitina vel fyrir nýrri kynslóð U2 aðdáanda! U2 stóð fyrir könnun á heimasíðunni sinni til að leyfa aðdáendum að hafa áhrif á valið á plötuna og virðist það hafa tekist vel. Ég persónulega sakna reyndar t.d. Out Of Control af Boy plötunni eða Rejoice af October, en auðvitað er ekki hægt að gera öllum til geðs á svona albúmi. Snilld að fá svona mörg lög af B-hliðum smáskífna þeirra.

Diskur 1 Diskur 2: B-sides
  1. Pride (In The Name Of Love)
  2. New Year's Day
  3. With Or Without You
  4. I Still Haven't Found What I'm Looking For
  5. Sunday Bloody Sunday
  6. Bad
  7. Where The Streets Have No Name
  8. I Will Follow
  9. The Unforgettable Fire
  10. Sweetest Thing (The single mix)
  11. Desire
  12. When Love Comes To Town
  13. Angel Of Harlem
  14. All I Want Is You
  1. The Three Sunrises
  2. Spanish Eyes
  3. Sweetest Thing
  4. Love Comes Tumbling
  5. Bass Trap (Instrumental)
  6. Dancing Barefoot
  7. Everlasting Love
  8. Unchained Melody
  9. Walk To The Water
  10. Luminous Times (Hold On To Love)
  11. Hallelujah Here She Comes
  12. Silver And Gold
  13. Endless Deep
  14. A Room At The Heartbreak Hotel
  15. Trash, Trampoline And The Party Girl

Efst á síðu

All That You Can´t Leave Behind

All That You Cant´t Leave Behind coverAll That You Can´t Leave Behind kemur út 31. október 2000. Við takkana eru sem fyrr þeir Daniel Lanois og Brian Eno ásamt framlagi frá Steve Lillywhite, Mike Hedges, Richard Stannard og Julian Gallagher. Platan sýnir í réttu framhaldi þroska og breyttar áherslur hjá U2 félugum. Bono er nú sífellt meira kominn í mannúðarstörf og á plötunni syngur hann af gamalkunnri innlifun, eins og maður sem hugsanlega að syngja inn á sína síðustu plötu. Hún er margslungin í einfaldleika sínum, engin yfirdrifin mix eins og við fengum frá U2 á milli 1990 og 2000! Bara talið í og rokkað!

Mínar hugrenningar um All That You Can´t Leave Behind:

Þvílík endurfæðing. U2 þarf ekki að sanna neitt frekar, hvorki fyrir sjálfum sér né öðrum og því fylgja þeir eðlisávísuninni á þessari snilldarplötu og fara til baka í grunninn og rokka bara með hjartanu. Og árangurinn eftir því. Mjög góð plata sem skilaði þeim þremur Grammy verðlaunum, þ.á.m. lag ársins, Beautiful Day.

Lagalisti:
  1. Beautiful Day
  2. Stuck In A Moment You Can´t Get Out Of
  3. Elevation
  4. Walk On
  5. Kite
  6. In A Little While
  7. Wild Honey
  8. Peace On Earth
  9. When I Look At The World
  10. New York
  11. Grace

Efst á síðu

The Best Of 1990-2000

The Best Of 1990-2000 cover

Útgáfudagur Limited Edition 4. nóvember 2002 og venjulega útgáfan 11. nóvember.

Mínar hugrenningar um 1990-2000:

Ég er nokkuð ánægður með þetta safn. Þarna eru á ferðinni nokkur góð mix af frábærum lögum eins og Gone og Staring At The Sun. Á diski 2 eru svo remix sem ekki oft heyrast á mínum spilara, en það er samt alltaf gaman að heyra hvernig hægt er að remixa góð lög þó að ég kjósi þau nú í upprunalegri útgáfu, eða a.m.k. lítið breytt!

Diskur 1 Diskur 2: B-sides
  1. Even Better Than The Real Thing
  2. Mysterious Ways
  3. Beautiful Day
  4. Electrical Storm (William Orbit mix)
  5. One
  6. Miss Sarajevo
  7. Stay (Faraway, so close!)
  8. Stuck In A Moment You Can't Get Out Of
  9. Gone (New Mix)
  10. Until The End Of The World
  11. The Hands That Built America (Theme from "Gangs Of New York")
  12. Discothéque (New Mix)
  13. Hold Me, Thrill Me, Kiss Me, Kill Me
  14. Staring At The Sun (New Mix)
  15. Numb (New Mix)
  16. The First Time
  1. Lady With the Spinning Head (Extended Dance Mix)
  2. Dirty Day (Junk Day Mix)
  3. Summer Rain
  4. Electrical Storm (Band Version)
  5. North and South of the River
  6. Your Blue Room
  7. Happiness is a Warm Gun (The Gun Mix)
  8. Salome (Zooromancer Remix - Best of Edit)
  9. Even Better than the Real Thing (Perfecto Mix)
  10. Numb (Gimme Some More Dignity Mix - Best of Edit)
  11. Mysterious Ways (Solar Plexus Club Mix)
  12. If God Will Send His Angels (Big Yam Mix)
  13. Lemon (Jeep Mix)
  14. Discotheque (Hexidecimal Mix - Best of Edit)

Efst á síðu

How To Dismantle An Atomic Bomb

HTDAAB cover22. nóvember árið 2004. Við stjórntakkana er núna Steve Lillywhite á ný ásamt framlagi frá Carl Glanville, Brian Eno, Daniel Lanois, Chris Thomas og Jacknife Lee. Það var þó ekki Steve sem átti að stjórna upptökum í upphafi. Platan var tekin upp tvisvar, í fyrra skiptið var það Chris Thomas, sem meðal annars hafði unnið með INXS, Roxy Music, Sex Pistols og Pink Floyd. En eitthvað vantaði og samstarfið við Chris fór út um þúfur. Það var því Steve sem var kallaður til og nú var platan tekin upp aftur í einkastúdíói U2 í Dublin. Eins og til að bæta enn meira ofan á vandræðin vaknaði gamall draugur og geisladiskur með öllum lögunum fullkláruðum en óútgefnum hvarf úr tösku The Edge þar sem bandið var í myndatöku hjá Anton Corbijn. Skelfing greip um sig hjá U2 teyminu, allir mundu eftir bootlegginu sem var gefið út eftir að upptökum af Acthung Baby var stolið. En sem betur fer í þetta skiptið sluppu þeir við slík örlög!

Mínar hugrenningar um How To Dismantle An Atomic Bomb:

"This is our first album" segir Bono á DVD diskinum sem fylgir sérútgáfunni af þessarri stórgóðu plötu. Það lýsir kannski best áhuganum og neistanum sem enn ríkir í U2 eftir 27 ára samstarf. Þessi plata er enn svo ný undir geislanum hjá manni að uppáhaldslagið breytist á milli hlustana. Í fyrstu var það Crumbs From Your Table en Original Of The Species, All Because Of You og Vertigo eru einnig á listanum.

Lagalisti:
  1. Vertigo
  2. Miracle Drug
  3. Sometimes You Can´t Make It On Your Own
  4. Love And Peace Or Else
  5. City Of Blinding Lights
  6. All Because Of You
  7. A Man And A Woman
  8. Crumbs From Your Table
  9. One Step Closer
  10. Original Of The Species
  11. Yahweh
  12. Fast Cars

Efst á síðu