1. Kaflar:
  2. The Joshua Tree

The Job!

Það er varla hægt að rífast um að U2 er stærsta rokkband síðustu 20 ára eða svo!! Hvað sem segja má um smekk fólks, því vissulega er hann mismunandi, þá verður ekki fram hjá því horft að aðdáendur U2 eru afar tryggir og hafa yfirleitt veikst af nokkurs konar "U2-mania!!"

The Joshua Tree

Segja má að grunnurinn að næsta skrefi U2 hafi verið lag sem Bono samdi fyrir góðgerðarplötuna "Sun City", sem var gerð til fjáröflunar fyrir Artists United Against Apartheid, samtök sem Steve Van Zandt gítarleikai með Bruce Springsteen var í forsvari fyrir. Silver And Gold heitir lagið og er blúsað á amerískan máta og töluverð tilfærsta frá hinu dæmigerða U2 sándi. Bono var nú á ferð og flugi við að spila með öðrum listamönnum, m.a. Clannad í laginu In A Lifetime. Það var nú samt kominn tími á að huga að næstu U2 plötu og upphafið af henni fór fram á heimilum Bono, Adams og Larry og síðan fínpússað í Windmill Lane. Lögin og textarnir komu auðveldlega í þetta skiptið og nóg var af efni, en vinnan við plötuna dróst þó langt fram á árið 1986. Enn meiri tafir urðu þegar U2 uppfyllti loforð sem þeir höfðu löngu gert um að fara tónleikaferðalag um USA til stuðning Amnesty International á 25 ára afmæli þess. Conspiracy Of Hope hét túrinn og var frábærlega vel heppnaður, þar sem yfir 4 milljónir dollara söfnuðust í framlögum fyrir AI og tvöfaldaði meðlimatölu samtakanna. Túrinn sýndi vel hversu mjög U2 var orðin þekkt í Bandaríkjunum. Við komuna til Dublin eftir ferðina fóru strákarnir beint í stúdíóið til að klára plötuna sína, The Joshua Tree. The Joshua Tree kom út í Mars 1987 og fór beinustu leið á topp breiðskífulistans í USA. Slík var eftirspurnin nú eftir U2 að plötubúðir vestra opnuðu á miðnætti á útgáfudaginn og salan var með ólíkindum, ásamt því að koma öllum fyrri plötum U2 aftur inn á topp 40 listann! Til að gefa mynd af sölunni þá hafði The Unforgettable Fire selst í sex milljónum eintaka í þau rúm tvö ár síðan hún kom út en Joshua Tree seldist í meira en þreföldu því upplagi á helmingi skemmri tíma!! With Or Without You var líka fyrsta smáskífa U2 (og reyndar sú fyrsta hjá írsku bandi yfir höfuð) til að komast á topp smáskífulista USA og til að bæta enn á velgengnina urðu U2 þriðja bandið í sögunni, á eftir Bítlunum og The Who, til að komast á forsíðu Times, undir fyrirsögninni "U2: Rock´s Hottest Ticket". Ekki slæmt fyrir fjóra Dublinarstráka!!! Plötunni var einnig vel tekið í Bretlandi og seldist í yfir 250.000 eintökum fyrstu tvo dagana. Bretar voru þó tregari við að koma smáskífunum á toppinn þar! En rúsínan í pylsuendanum var svo auðvitað þeirra fyrstu Grammy verðlaun, Best rock performance by a duo or group fyrir I Still Haven´t Found... og einnig Album of the year fyrir Joshua Tree! Frá fundinum í eldhúsi Larrys fyrir um áratug áður, hafði nú hljómsveitin U2 tekið heiminn í fang sér!!!

Efst á síðu

To be continued... !!!