Fyrsta ferð í sauðburð





-
Sauðburður
hófst í síðustu viku í sveitinni. Við
fórum og vorum langa helgi og stóðum vaktina á
móti Gísla. Það var fínasta veður og
hægt að vera mikið úti.
-
Lömbin
komu nokkur í heiminn og vonandi að þau braggist vel sem
og öll þau sem eiga eftir að líta dagsljósið
þetta árið.

Þurftum
að bíða aðeins af okkur heljarinnar storm til að komast
í sveitina en eftir það var ósköpmilt veður...og
sem betur fer snjóaði ekki hjá okkur.

-
Það
var mikil spenna að komast í fjárhúsin og sjá
fyrstu lömb þessa vors. Sérstaklega var Arnaldur Kári
spenntur að sjá hana Míu
-
og
lömbin hennar. Í fyrra þegar Mía bar í fyrsta
skiptið átti hún eina gimbur en núna bar hún
tveimur og Arnaldur Kári nefndi þær
-
báðar
Mimla...ekkert vera að breyta til!

Mimlurnar
stilla sér upp!


Arnaldur
Kári var alveg heillaður af dúllunum!

-
Ég
átti fyrstu næturvaktina (sem var sem betur fer róleg
hjá borgarbarninu!). Hann Töggur fylgdist
-
mjög
vel með öllu og skildi ekkert í því hvað
ég veitti honum litla athygli!
-

Lambakóngurinn
í ár, kom fyrstur 26. apríl. Mér finnst eins og
hann sé að brosa!

Ástþór
Örn náði þessari fallegu mynd af honum

-
Utan
dyra er líka að lifna mikið yfir öllu og ekki er ég
nú farin að ná blómamyndum þetta vorið
-
en
fuglamyndirnar eru alveg óteljandi eftir helgi í sveitinni!!
-
Þrestirnir
voru í miklu tilhugalífi og dönsuðu svo mikið
að manni fannst maður lentur í
-
miðri
Mjallhvítarmynd
-
Brýt
hér aðeins upp myndaprógrammið...Sigurður á
leið í fjárhúsin. Verst að jakkinn sést
ekki betur
-
en
ég nota hér tækifærið enn eitt árið
og býð vel með farinn plas-ermajakka sem haldið var að
hefði verið
-
í
tísku í um viku árið 1993!! En æ, kannski
ágætur í sveitinni...en ég get vottað það
að endingin á þessum
-
jökkum
er sorglega góð.

Það
er aftur á móti algjörlega bannað að gera nokkuð
grín að þessari fínu regnkápu minni!

Farið
í fjárhúsin...nýfallinn snjór í
fjöll en náði sem betur fer ekki alla leið til okkar

-
Ástþóri
Erni leiðist ekki sauðburðartíminn og vill vera sem mest
í húsunum að athuga hvort
-
"einhver
sé líkleg"
-
Og
ekki höfðum við nú tíma til að fylgjast náið
með enska brúðkaupinu á föstudagsmorgun (ekki
það að
-
ég
held að RÚV hafi sýnt alla dagskrána fjórum
sinnum á þremur dögum þannig að á endanum
sá maður nú eitthvað!)
-
en
kl. 10:30 að morgni föstudagsins 29. apríl bar Borgar-Blíða
hrút og gimbur sem voru að sjálfsögðu nefnd
-
Vilhjálmur
og Kata. Þeim feðgum leist í fyrstu ekkert á þetta
grín mitt en Ástþór Örn stemmningsmaður
sá
-
það
skemmtilega í þessu og á laugardaginn birtist hann á
Skessuhornsvefnum
og leiddist það nú ekki!
-
Held
að þetta hljóti að vera lambamyndin hans þetta
árið :)

Sólarhringsgömul
var gimbrin svei mér þá komin með meira kjöt
á beinin en hertogaynjan sem hún er nefnd eftir!!!!!!

-
Ástþóri
Erni sveið svolítið að bústofn Arnaldar Kára
væri orðinn stærri en hans...
-
þar
sem hann á eina kind sem var borin! Ástþór Örn
hér ásamt forystuærinni hans henni
-
Fíónu
sem er sett síðar í maí
-
Arnaldur
Kári fékk aðeins að halda á rólegri
Mimlunni og átti ekki orð yfir þessu öllu saman
-
Það
er gaman að skoða sauðburð fyrri ára og sjá
þessa bræður stækka og nýjar kynslóðir
-
-
Á
næturvakt hjá Sigurði bar gemlingurinn hans þessum
fínu lömbum. Sigurður Ágúst fékk lamb
í
-
húsunum
að gjöf fyrir einhverjum árum og var það þegar
Lord of the Rings æðið gekk yfir og hann
-
nefndi
þá kind Galadríel eftir einhverri álfkonu þar.
-
Galadríel
eignaðist svo gimbur og fékk nafnið Álfmóra
og er óborin í ár (við pabbi aðstoðuðum
aðeins
-
við
nafngiftina - tengdum hana þar foreldrunum en við erum svolítið
á svona nafnaseríulínu!). Álfmóra bar
svo í fyrra þessari gimbur
-
sem
hér var að bera. Í sauðfjárbókhaldinu
er hún skráð undir nafninu Álfrún. Þeir
feðgar eiga allir afskaplega spakar og ljúfar
-
kindur
en ég hef verið svolítið í hinni deildinni
og taka þeir bræður alveg sveig fram hjá henni Furu
minni (sem er einmitt Eikardóttir!)

Nú
var græni traktorinn sóttur en síðast var ekki veður
í það. Ótrúlega gaman að hjóla um
á honum

Og ekki
síður leiðinlegra að sulla svolítið líka
Stoltur
fjárbóndi á ferðinni

Mér
sýnist Píla hundfúl með að fá ekki far
líka ;)

-
Á
laugardaginn vatt ég mér út til að hirða hvítan
plastpoka sem var fastur í trjánum...að ég hélt.
-
Þegar
ég kom nær var þarna rjúpa í mestu makindum
að reyna að fela sig, ég hefði átt að benda
henni á
-
að
fela sig í Reykjavík.

Spígsporandi
stelkur

-
Á
meðan Ástþór Örn fór í leiðangur
um sveitina með Gísla drifum við hin okkur í göngutúr.
-
Arnaldur
Kári var reyndar mest allan tímann að veiða hitt og
þetta á þessa trjágrein og segja okkur
-
sögur
af því hvað hann ætlaði að veiða mikinn
fisk í sumar...svo drjúgur var hann með sig að mér
heyrðist
-
það
vera algjört aukaatriði að ná þessum fiskum öllum!!
...............
-
Ástþór
Örn og Gísli fóru víða og meðal annars
hittu þeir þessa hvolpa að Hjarðarfelli. Ástþór
Örn hafði víst lýst því við Gísla
hvað
-
væri
ömurlegt að búa ekki í einbýlishúsi
og geta ekki átt hund...og hann skildi ekkert í því
af hverju við værum ekki búin að kaupa hús
-
til
að kippa þessu í liðinn fyrir hann!!!

Vorhugur
í Ástþóri Erni í frispí

-
Arnaldur
Kári elskar að blása sápukúlur...en er þeim
mun meiri klaufi elsku karlinn og er búinn að hella
-
miklu
niður af sápukúluvatni þetta vorið og gráta
einhver ósköp yfir hrakförum sínum.
-
Þá
er oft gott að eiga stóran bróðir sem fer mjög
svo sparlega með sínar sápukúlur og gefur
-
bróður
sínum örlítinn sápudreytil!

Og rétt
áður en við fórum í gær bar hún
Fönn tveimur lömbum...sem eru hér eins og sjá má
alveg glæný.

-
Vorvindar
glaðir...nei ó nei...1. maí varð alltaf vetrarlegra
og vetrarlegra þeim mun nær sem við
-
nálguðumst
höfuðborgina