![]() |
16. maí Þá erum við komin úr Dal, þar sem við erum búin að eiga ansi góða daga. Ástþór Örn beið hér spenntur eftir ömmu sinni á föstudaginn og á leiðinni var hann farinn að kalla á "afa í Gal" í hvert skiptið sem hann sá sveitabæ! Þegar við komum drifum við okkur strax í pollafötin og kíktum út í fjárhús. Vonbrigðin voru svo mjög mikil þegar átti að fara inn að borða og taka því rólega...minn ekki á því og hágrét og bað um "meiri kindur"!!!!! Á laugardagsmorgunin vorum við mæðgin því komin út snemma til að kíkja á kindurnar, leika í sandkassanum og fleira. Sigurður Ágúst kom svo á laugardagskvöldið og Vigdís og co. bættust svo í hópinn í gær. Ansi skemmtileg sveitaferð að baki...og Ástþór Örn langt frá því að vera til í að fara heim í dag :o)
|
|
||
|
|
Við drifum okkur út að kíkja á kindurnar og lömbin með afa Ástþóri um leið og við vorum komin í Dal
Ástþór Örn fékk að halda á lambi og vildi helst taka það með inn í hús
Fjarki forvitinn að skoða gestina í fjárhúsunum
Ástþór Örn fylgdist með þegar þessi tvö lömb komu í heiminn...var ekki alveg að skilja hvernig þessar litlu kindur kæmu út um rassinn á mömmunni...eins og hann orðaði það sjálfur!
Það var svo ekki hægt annað en að taka einn smá hring á traktornum
Gaman að busla í pollum
Á laugardaginn var málað svolítið
Ástþór Örn í "fjallgöngu"
Við mæðgin komumst svo upp á topp á "fjallinu"!!
Á leiðinni að hitta Frakk og Létti
Að gefa Frakk brauð
Ástþór Örn fékk aðeins að prófa að setjast á bak
Leikið í sandkassanum
Er nú stundum svolítið hranalegur við aumingja Pílu...en hún fær nú líka oft knús!
Notalegt hjá þeim körlum
Ólíver að leika í blíðunni
Þeir frændur eitthvað að bauka
Í sólinni á svölunumm í Dal
Og svo varð Ástþór Örn að sýna Ólíver traktorinn fína
Á spjallinu...
...truflaður!
var þá ekki Krummi mættur á þakið og vildi fá svolitla athygli!!
|
|
||