Sauðburður og vinafundur




Við áttum góðar stundir í sveitinni fyrstu helgina í maí. Sauðburður hafinn og því nóg að gera. Ástþór Örn var búinn að telja dagana og svo klukkustundir í að við kæmumst í sveitina en við seinkuðum aðeins förinni þar sem Arnaldur Kári krækti sér í einhverja smá pest í lok apríl sem reyndist vera einhver vírus og kallast ýmist sjötta veikin eða mislingabróðir. Við leyfðum honum því að jafna sig áður en við drifum okkur vestur. Það var ekki bara að Ástþór Örn væri spenntur fyrir því að komast í sauðburðinn heldur voru frænkur okkar úr eyjunum væntanlegar í helgarferð í sveitina líka. Þetta gat því ekki orðið nema skemmtilegt, eins og myndirnar votta! Gjörið svo vel :o)

Þessi kútur veit fátt skemmtilegra en að fara út og þegar var svo farið að tala hér um kindur og hunda,
bera dót út í bíl en hann var hér inni var mínum nóg boðið. Hann gekk því hundfúll hér með úlpuna um allt
áður en lagt var í hann!!

Við vorum varla komin upp að húsinu í Dal þegar Ástþór Örn var kominn í útiföt og farinn í fjárhúsin.

Svoooo gaman að fá að halda á lambi

Þessi til hægri heitir Skúmur og er orðinn margfaldur pabbi í þessari sauðburðartíð!
Söguna af þessum hvíta fáið þið hér síðar!!

Aumingja kindurnar alveg að fara á taugum yfir þessum margföldu "barnsránum"

Arnaldur Kári að spjalla við Fíónu, sem er forystugemlingur í eigu Ástþórs Arnar

Hún er afskaplega spök og finnst gaman þegar er heilsað upp á hana

Arnaldur Kári fullorðnast heilmikið við að fara í pollaföt og stígvél!

Regnbogi yfir flötunum hjá hrossunum

Þeir nafnar fóru aðeins og litu til hestanna og Frakkur var ólmur í að komast með þeim heim,
það var því ekkert annað í stöðunni hjá Ástþóri Erni en að sitja berbakt og þiggja far heim með honum!

Ástþór Örn hlakkar mikið til að komast á hestbak í sumar, ætlar að byrja á því að fara á nokkurra vikna
reiðnámskeið í júní.

Og loksins mættu Kristín Rós og Sigurlaug (ásamt ömmu Kristínu) í sveitina.
Kristín Rós verður 10 ára í sumar og þau hin á leið í skólann í haust.

En þessi er nú enn bara lítill stúfur sem er að byrja á Álfaheiði eftir sumarfrí

Þau vörðu mörgum stundunum í fjárhúsunum þessi þrjú


Kristín Rós heilsar upp á Blíðfinn og Baug. Hennar kind, hún Ísabella Blíðfinnsdóttir
á svo að bera þremur lömbum næstu helgi.

Aprikósa lét sér fátt um finnast þó að lömbin væru nú með smá æsing

Arnaldi Kára finnst voða gaman að fylgjast með kindunum úti í gerðinu fyrir utan fjárhúsin

Krakkar að leika í sveitinni

Heilsuðum aðeins upp á Neista, Dufgus, Merkan og Dropa

Svo var nú líka leikið svolítið innan dyra. Arnaldur Kári var ansi líka ánægður með að fá þessar skemmtilegu frænkur í heimsókn

Á laugardagskvöldið fórum við aðeins í fjárhúsin til að fylgjast með lömbum koma í heiminn.
Leikið í hlöðunni á milli þess sem minna var að gerast!

Lömbin voru flest sofnuð og létu myndatöku ekki raska rónni

En svo fór að draga til tíðinda og tvær stórar og myndarlegar gimbrar komu í heiminn!

Hún Sigurlaug kom í heimsókn í sauðburðinn í fyrra og nefndi þá einn hrút Jónatan. Hún fór því strax að skima eftir
honum þegar hún kom núna og varð nú svolítið leið að heyra af því að það væri erfitt að fylla allt af hrútum
og hann hefði því farið í sláturhúsið síðasta haust. Hún tók gleði sína fljótt á ný þegar Gísli sagði henni að hvítur
lambhrútur í húsinu ætti enn eftir að fá nafn og Jónatan væri góð hugmynd. Jónatan er því mættur aftur og
vonandi til að vera eitthvað áfram!





Borgar-Blíða með sín tvö fallegu lömb

Þrílembingar með mömmu sinni

Þessi myndarhrútur er undan Álfmóru sem Sigurður Ágúst á.

Ingibjörg oft mætt til að fá smá klór á snoppuna

Töggur forystuhrútur

Og hér er hann lítið lamb í fyrravor!

Arnaldur Kári var voða spenntur fyrir þessum litlu krúsidúllum!

Feðgar á leið úr fjárhúsunum

Við kvöddum þær systur á sunnudag með loforði um að kíkja sem fyrst í eyjarnar

Það var ekki bara verið í fjárhúsunum, plöntum var aðeins sinnt líka!




Fuglalífið að kvikna í sveitinni og Maríuerlurnar mættar með vorið!


Þröstur á trjátoppi

Sauðburð fyrri ára má rifja upp með því að smella á árin! 2005, 2006, 2007 og 2008
