Vorferð í
sveitina 
Fórum í sveitina síðustu helgi. Þar var fylgst með í fjárhúsunum, farið í gönguferðir og leikið úti.
Hér er því fysti hluti af sauðburðarmyndum, þið fáir örugglega að sjá svolítið meira af þeim þegar líður á mánuðinn og lömbum fjölgar.

Vorblóm í sveitinni

Það voru ansi spenntir bræður sem renndu í hlað í sveitinni og vildu drífa sig strax í fjárhúsin

Þar er aðeins farið að draga til tíðinda, þó að allt hafi verið fremur rólegt á meðan við vorum. Það bar þó ein stuttu
eftir að við komum en svo héldu þær bara alveg í sér og fannst við örugglega bara fyndin að vera líta til þeirra á nóttu sem degi!
Hér er hún Álfmóra, kindin hans Sigurðar

Ástþór Örn sveitastrákur er alltaf glaður þegar sauðburðurinn hefst

Arnaldur Kári fylgdist einna mest með henni Míu sinni, en það er kindin hans! Það gekk hálf erfiðlega að finna nafn
á gemsann og í fyrstu vildi Arnaldur Kári nafnið "stelpa" en datt svo niðu á Míu-nafnið enda mikill aðdáandi
íbúanna í Múmíndal

Þessi kind, hún Sveskja, bjargaði þessu alveg hjá okkur því hún bar rétt eftir að við komum í sveitina

Arnaldur Kári að keyra traktorinn "sinn"...hans Ástþórs Arnar!
Þeir bræður geta þrætt um það löngum stundum hver eigi þennan traktor og
sættast svo á endanum á jafna eignaskiptingu...þá endar Ástþór Örn á að segja
"en afi gaf mér hann samt"...og allt byrjar upp á nýtt!!

Pílu sem finnst svoooo gott að leggja sig

Hrossagaukurinn mættur

Og sveitin að fyllast af Maríuerlunum yndislegu

Arnaldur Kári að keyra traktorinn!

Ástþór Örn og Arnaldur eru duglegir að heilsa upp á hrútana, sem fá annar frekar litla athygli í sauðburði

Rjúpa sem vonandi fer að komast í vorbúning

Ástþór Örn með gott útsýni

Eftir góðan göngutúr var endað í sandkassanum en Arnaldur Kári getur dundað sér þar endalaust, búið til
kaffi, kökur og alls konar

Kapphlaup í fjárhúsin!

Þessi strákur er orðinn mikill klifurköttur og kemur sér þangað sem hann
ætlar sér án hjálpar

Stundum slettist greinilega upp á vinskapinn í kindahópnum og hér áttu þessar tvær greinilega eitthvað óuppgert

Ekki gaman að vera kasólétt og lenda í slag...

Úff...ég vonaði nú fyrir hönd þessarar kindar að hún færi bara að bera!

Honum finnst líka voðalega gaman í fjárhúsunum

Ástþór Örn í sauðburði 2010 og er ekki gaman að rifja aðeins upp...

2009

2008

2007

2006

2005

Og Arnaldur Kári, örlítið eldri núna en Ástþór Örn á myndinni fyrir ofan. Húfan góða sem Ástþór Örn er með á myndinni
frá 2005 er enn í notkun, enda má Arnaldur Kári ekki sjá aðra húfu! Hefur eiginlega aldrei viljað nota lambúsettuna sem við keyptum handa honum,
alla vega ekki eftir að þessi gamla fannst.

Arnaldur Kári var hér ægilega súr yfir því að hann fengi ekki að halda á lambinu á meðan myndin var tekin!

Ætli Sigurður hafi nú ekki tekið þátt í sauðburði oftast af okkur!


Mía stillir sér upp

Arnaldur "tré"

Spiluðum þúsund, Ástþór Örn rúllaði okkur Sigurði upp

Vöfflukaffi

Göngutúr niður að á

Við Arnaldur Kári fórum nú ekki alveg niður að á en svona næstum, enda þarf þessi litli herra að skoða ansi margt
á leiðinni

Fórum á dráttarvélinni með smá hey í "unglingadeildina"


Enduðum sveitaferðina á heimsókn í fjárhúsin, þar sem allt var á rólegu nótunum.

Ástþór Örn vildi endilega að ég tæki mynd af þessari brellu hans!
Vonum að þið hafið það öll gott og njótið vorsins
