Sauðburður 2007
Skruppum vestur í dag og kíktum á sauðburðinn. Ástþór Örn var voða glaður að komast í Dal og vildi náttúrlega ekkert fara í bæinn aftur. Tók af okkur loforð að það yrði farið fljótlega aftur og þá gist!
Nokkrar myndir úr þessari stórskemmtilegu...og allt of stuttu sveitaferð!

Sveitastrákur glaður að vera sloppinn úr borginni!

Voðalega gaman að koma og sjá allar þessar litlu dúllur, sem margar eru afskaplega fallegar á litinn

Ástþór Örn með þennan myndarhrút

Hrúturinn Kolur lét sér fátt um sauðburð finnast, enda mæðir ekki mikið á hrútunum þá

Hrútarnir eru komnir allir saman í stíu, verið að hrysta hópinn saman fyrir sumarið, en þeir voru
víst ekkert allt of glaðir í fyrstu með að vera fluttir svona saman!!



Á meðan við vorum í Dal bar hún Ísabella þremur lömbum, tveim hrútum og einni gimbur

Dúlla með sólina í augunum

Fallegasti dagur í sveitinni og hefðum við öll verið til í að vera þar í marga marga daga!!

Ein mynd sérstaklega fyrir ömmu og afa! Ástþór Örn varð voðalega glaður að hitta þessar vinkonur sínar.

Plönturnar á réttri leið og Ástþór Örn kominn lengst út í buskann

Gengum niður að á og hittum þar fyrir rjúpnapar enn í svolitlu vetrarskapi svona hvít og tjald sem var einn á ferð.
Við erum viss um að þar sé á ferð sami tjaldurinn og hefur glatt okkur með nærveru sinni undan farin ár.


Það fer ansi vel um þær Pílu og Trýnu í sveitinni hjá Gísla og Hrefnu

Eftir góða stund úti og í fjárhúsunum fórum við inn í kafii með Gísla og Hrefnu. Ástþór Örn mætti
með smá bakkelsi í sveitina og gat bara ómögulega setið á sér að byrja að borða til að koma vel út á mynd!!
Hér með Gísla stórvini sínum, sem Ástþór Örn segir "stjórann" í sveitinni.

Ástþór Örn skellti sér í smá freyðibað þegar hann kom heim, sæll og glaður með daginn!
