Sveitaferð
![]()
Í gær ákváðum við að skreppa vestur og kíkja aðeins í sauðburðinn. Ekki var verra að Ólíver var í sveitinni í pössun yfir helgina og leiddist þeim frændum ekki að vera úti að leika sér í sandkassanum eða á traktornum, kíkja á lömbin, hestana og fleira.
Þeir sætu frændur komnir út í sandkassa að leika
Og svo var farið á fína traktorinn
Svolítið erfitt að ná niður á pedalana þannig að Ástþór Örn var þeim mun duglegri að ýta frænda áfram
Ástþóri Erni þykir ansi flott að vera með hatt eins og "dönsku hermennirnir"!!!

Ástþór Örn mættur fjárhúsin að kíkja á lömbin. Það gekk ekki alveg nógu
vel að hjálpa Ástþóri Erni að halda á lambinu og taka mynd!!
Kindin hans Sigurðar með sitt fallega lamb
Við urðum öll ansi skotin í þessari dúllu, sem var ólm í að láta klappa sér og var alltaf komin að kíkja á okkur þegar við komum
í fjárhúsið.
Alltaf jafn notalegt að sjá lömbin kúra sig svona í hrúgu!
Þeim frændum fannst mjög gaman að skottast í kringum lömbin. Ólíver var fljótur að slá
eign sinni á þetta lamb og varð ansi fúll þegar því var skilað aftur til mömmu sinnar!
Ástþór Örn að safna könglum...það verður nóg að föndra úr fyrir jólin!!
Ansi mikið sport að fá að sitja uppi á rúllunum og renna sér svo niður af þeim...með smá aðstoð.
Léttir, Skuggi, Frakkur og Krummi voru sóttir úr haganum í gær.

Beðið eftir hádegismatnum
Ólíver alveg týndur...
...og fundinn!
Maður ætti kannski að athuga það að stytta sér stundir með þessum sama hætti og þeir frændur þegar
farið er út að borða til dæmis!!!
Ekkert allt of glaður með það að vera að fara úr sveitinni, rétt eins og venjulega!