Jón Þórðarson Thoroddsen
(Jón Thoroddsen eldri; Jon Thordssön Thoroddsen)
05.10.1818 - 08.03.1868 (49 ára)

Danmark
Hæren
Underofficer (kvíslarforingi, liðþjálfi)
18.04.1848 - 18.08.1848 (0,4 ár)


Tímabil: 18.04.1848 - 28.04.1848.
Tign: Menig soldat (óbreyttur).
Herlið: 13. Linie Infanteri Bataillon (2. Regiment Slesvigske Fodregiment), 4 Kompagni.
Svið: Mikil orrusta við sameinaðan liðsafla Prússa og Schleswig-Holsteinbúa við Schleswig 23. apríl en þeirri orrustu lauk með því að Danski herinn laut í lægra haldi og hörfaði skipulega til Flensborg og Alsen Ø.
Bækistöð: Flensborg, Schleswig, Danmark.

Tímabil: 29.04.1848 - 20.05.1848.
Tign: Undercorporal (undirriðilsforingi, undirkorporáll).
Herlið: 13. Linie Infanteri Bataillon (2. Regiment Slesvigske Fodregiment), 4 Kompagni.
Svið: Schleswig-Holstein Stríðið.
Bækistöð: Alsen Ø, Schleswig, Danmark.

Tímabil: 21.05.1848-18.08.1848.
Tign: Underofficer (kvíslarforingi, liðþjálfi).
Herlið: 13. Linie Infanteri Bataillon (2. Regiment Slesvigske Fodregiment), 4 Kompagni.
Svið: Schleswig-Holstein Stríðið. Árás frá Alsen Ø á Prússa við Dybbølhæð við Sundeved 28. maí og þeir hraktir undan. Vörnin gegn harðvítugri árás Prússa við Haderslev 5. júní.
Bækistöð: Alsen Ø, Schleswig, Danmark.

Persónulýsing: Jón gat sér góðan orðstír í hernum og var hann talinn staðfastur og hugrakkur hermaður. Fyrir það var hann hækkaður í tign. Fyrir bænastað móður sinnar og með fé frá henni keypti hann sig lausan úr herþjónustu haustið 1848.

Persónulegar upplýsingar

Hermaður, skáld, sýslumaður

Aldur: (49 ára).

F: 05.10.1818, Reykhólar, Reykhólasveit, Austur-Barðastrandarsýsla.
L: 08.03.1868, Leirá, Melar, Melasveit, Borgarfjarðarsýsla.

Foreldrar:

Þórður Þóroddsson (Thoroddsen), bóndi og beykir.
F: 31.05.1779, Vatneyri, Sauðlauksdalur, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 10.11.1846, Reykhólar, Reykhólasveit, Austur-Barðastrandarsýsla (67 ára).

Þóroddur Þóroddsson, kennari, bóndi og beykir.
F: 07.05.1742, Vatneyri, Sauðlauksdalur, Patreksfjörður, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 26.09.1798 (56 ára).
Bergljót Einarsdóttir, húsfreyja.
F: 1744, Vatneyri, Sauðlauksdalur, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 26.05.1827 (83 ára).

Þórey Gunnlaugsdóttir, húsfreyja.
F: 20.09.1787, Rif, Hegranes, Skagafjarðarsýsla.
L: 19.06.1863, Reykhólar, Reykhólasveit, Austur-Barðastrandarsýsla.

Gunnlaugur Magnússon, prestur.
F: 01.09.1748, Höskuldsstaðir/Reynisstaðir, Austur-Húnavatnssýsla.
L: 19.06.1804, Hafsteinsstaðir, Staðarhreppur, Skagafjarðarsýsla.
Arnfríður Þorláksdóttir, húsfreyja.
F: 1755, Núpufell, Möðruvallaklaustur, Eyjafjarðarsýsla.
L: 04.07.1822.

Systkini:

Hildur Þórðardóttir Thoroddsen.
F: 05.05.1808, Vatneyri, Sauðlauksdalur, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 06.06.1882.
Jóhanna Kristín Þórðardóttir Thoroddsen.
F: 12.04.1817, Reykhólar, Reykhólasveit, Austur-Barðastrandarsýsla.
L: 20.10.1894.
Jón Þórðarson Thoroddsen.
F: 05.10.1818, Reykhólar, Reykhólasveit, Austur-Barðastrandarsýsla.
L: 08.03.1868, Leirá, Melasveit, Borgarfjarðasýsla.

Hjúskaparstaða:
I
Kvæntur 1840.

Ólöf Hallgrímsdóttir Thorlacius.
F: 03.04.1816, Hrafnagil, Hrafnagil, Eyjafjarðarsýsla.
L: 08.04.1854, Saurbær, Eyjafjarðarsýsla.

Hallgrímur Hallgrímsson Thorlacius, prestur.
F: 22.09.1792, Mikligarður, Eyjafjarðarsýsla.
L: 17.10.1859, Hrafnagil, Eyjafjarðarsýsla.
Guðrún Magnúsdóttir.
F: 29.11.1793, Öngulstaðir, Munkaþverá, Eyjafjarðarsýsla.
L: 31.08.1859.

Skilin.

Skilin.

II
Kvæntur 29.08.1854.

Kristín Ólína Þorvaldsdóttir Sívertsen, húsfreyja.
F: 20.06.1833, Hrappsey, Dagverðarnes, Dalasýsla.
L: 27.11.1879.

Þorvaldur Sigurðsson Sívertsen, bóndi, umboðsmaður og alþingismaður.
F: 29.05.1798, Stóra Vatnshorn, Dalasýsla/Fjarðarhorn við Hrútafjörð, Strandasýsla.
L: 30.04.1863, Hrappsey, Dagverðarnes, Dalasýsla.
Ragnhildur Skúladóttir, húsfreyja.
F: 10.06.1800, Skarðsþing, Dalasýsla.
L: 01.07.1851.

Börn:

I

Elín Guðrún Jónsdóttir Thoroddsen, húsfreyja.
F: 09.08.1841, Hrafnagil, Eyjafjarðarsýsla.
L: 28.05.1934.

II

Þorvaldur Jónsson Thoroddsen, dr. og prófessor.
F: 06.06.1855, Flatey, Breiðafjörður, Austur-Barðastrandarsýsla.
L: 28.09.1921, København, Danmark (66 ára).
Þórður Jónas Jónsson Thoroddsen, héraðslæknir á Suðurnesjum, bankaféhirðir, alþingismaður.
F: 14.11.1856, Hagi, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 19.10.1939 (82 ára).
Brynjólfur Ármann Jónsson Thoroddsen.
F: 01.01.1858, Hagi, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 06.03.1858, Hagi, Vestur-Barðastrandarsýsla (0,2 ára).
Skúli Jónsson Thoroddsen, bæjarfógeti, ritstjóri og alþingismaður.
F: 06.01.1859, Hagi, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 21.05.1916 (57 ára).
Ragnhildur Jónsdóttir Thoroddsen.
F: 23.04.1860, Hagi, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 22.07.1860, Hagi, Vestur-Barðastrandarsýsla (0,3 ára).
Lárus Jónsson Thoroddsen.
F: 14.06.1862, Hagi, Vestur-Barðastrandarsýsla.
L: 29.06.1862, Hagi, Vestur-Barðastrandarsýsla (0,07 ára).
Sigurður Jónsson Thoroddsen, landsverkfræðingur og yfirkennari við M.R.
F: 16.07.1863, Leirá, Melasveit, Borgarfjarðarsýsla.
L: 29.09.1955, Reykjavík, Gullbringusýsla (92 ára).
Lárus Jónsson Thoroddsen.
F: 05.12.1864, Leirá, Melasveit, Borgarfjarðarsýsla.
L: 08.02.1868 (3 ára).

Námsferill:

1840 stúdent með 1. einkunn 87 st. úr Bessastaðaskóla.
19.10.1841-18.04.1848 laganemi í Kaupmannahöfn.
Exam. Art. 2. einkunn.
11.04.1843 Ex. Philol.
1843 Ex. Philos. 2. einkunn.
22.08.1848-1850 laganemi í Kaupmannahöfn.
1853-25.01.1854 Exam. Juris 1. einkunn, frá Kaupmannahafnarháskóla.

Starfsferill:

1840-1841 kennari á Hrafnagili í Eyjafirði.
06.07.1850-1853 sýslumaður Barðastrandarsýslu.
22.06.1854-06.06.1862 sýslumaður Barðastrandarsýslu.
06.06.1861-1868 sýslumaður Borgarfjarðarsýslu.

Félagsstörf:

?

Ritstörf:

Kvæðið Kveðja birtist í Fjölni, 1847.
Norðurfari, tveir árgangar, ásamt Gísla Brynjúlfssyni, Kaupmannahöfn, 1848-1849.
Dálítil ferðasaga, Norðurfari I, Kaupmannahöfn, 1848.
Fyrsta saga Jóns birtist í Norðurfara á þessum árum, 1848-1849.
Ljóðið Í bardaga við Slésvík 23. apríl 1848 samið, 1848.
Ljóðið Málagjöldin samið, 1848.
Ljóðið Hermannsgangan samið, 1848.
Skáldsagan Piltur og stúlka: dálítil frásaga samin í Kaupmannahöfn, 1848-1849, gefin út 1850.
Ljóðasafnið Snót, ásamt Gísla Magnússyni, 1850.
Ljóðabókin Veiðiför, gamanríma, 1865.
Ljóðabókin Kvæði, 1871.
Skáldsagan Maður og kona: skáldsaga samin í Haga en Jón náði ekki að fullklára hana, kom fyrst út 1876.
Skáldsögur Jóns Thoroddsens I-II, gefið út af Steingrími J. Þorsteinssyni, 1942.
Úrvalsljóð, valin af Unni Benediktsdóttur Bjarklind, 1944.
Ljóð og sögur, úrval í útgáfu Steingríms J. Þorsteinssonar.

Aðsetur:

Reykhólar, Reykhólasveit, Austur-Barðastrandarsýsla, 05.10.1818-1840.
Hrafnagil, Eyjafjörður, 1840-1841.
Kaupmannahöfn, Danmörk, 19.10.1841-1850.
Flatey, Breiðafjörður, 1854-1855.
Hagi, Barðaströnd, Vestur-Barðastrandarsýsla, 1855-1862.
Hvítárvellir, Andakílshreppur, 1862-1863.
Leirá, Leirársveit, Borgarfjarðarsýsla, vor.1863-1868.
Annað:
Jón er talinn vera brautryðjandi í íslenskri skáldsagnagerð og faðir íslensku skáldsögunnar.


Heimildir

Aðalgeir Kristjánsson 1982. Oft er hermanns örðug ganga: fjögur bréf frá Jóni Thoroddsen. Í Gripla, ritstjóri Jónas Kristjánsson. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar.
Birgir Thorlacius 1999. Íslensk heiðursmerki. Reykjavík: Háskólaútgáfan.
Carr, W. 1963. Schleswig-Holstein 1815-48: A Study in National Conflict. Manchester: Manchester University Press.
The Church of Jesus Christ of Latter-Day Saints Family Search: Internet Genealogy Service. 2000. http://www.familysearch.org/
Gunnlaugur Haraldsson 1993. Lögfræðingatal 1736-1992. Reykjavík: Iðunn.
Hannes Pétursson og Helgi Sæmundsson 1973. Íslenzkt skáldatal a-l. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.
Páll Eggert Ólason 1950. Íslenzkar æviskrár: frá landnámstímum til ársloka 1940. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag.
Kristján J. Gunnarsson 1980?. Skólaljóð. Reykjavík: Ríkisútgáfa námsbóka.
Rithöfundavefurinn: Jón Thoroddsen. 2000.
http://www.nett.is/rithofundavefur/jon_thoroddsen_aeviatr.htm
Steingrímur J. Þorsteinsson 1950. Jón Thoroddsen: ljóð og sögur. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Unnur Benediktsdóttir Bjarklind 1944. Jón Thoroddsen: úrvalsljóð. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja hf.
Vestfjarðavefurinn: Höfðingjar & skáld í Barðastrandarsýslu. 2000.
http://akademia.is/vestfirdir/Bardastrond/bahofdingjar.html

 

Íslenskir hermenn,
í tímaröð:

1600-1700

1700-1800

1800-1900

1900-2000

2000-2100

Vestur-Íslendingar í Kanada- og Bandaríkjaher 1914-18 og 1939-45

Íslenskir friðargæsluliðar

Heimavarnarlið Vestmannaeyja 1855-69

Lífvarðasveit Jørgen Jørgensens 1809

Mikilvægir sögulegir atburðir frá 1600 til 2000

Íslenskir hermenn:
oft er hermanns örðug gangan

Tign og hlutverk

Herskipulag