|
|
Brandarar:
Er það ekki furðulegt? Ef maður stendur inni í miðju
bókasafni og segir „Aaaaaaaggrgrgrgr“, þá stara allir á
mann, en ef maður gerir það í flugvél, þá taka allir
undir með manni.
.........................................................................................
Sagan segir af fjórum ormum sem var komið hverjum fyrir
sig í eina
krukku.
Fyrsti ormurinn var settur í krukku með áfengisvökva.
Annar ormurinn var settur í krukku fylltum af
tóbaksreyk.
Þriðji ormurinn var settur í krukku með sæðisvökva.
Fjórði ormurinn var settur í krukku með mold.
Eftir einn dag...
Fyrsti ormurinn... dó
Annar ormurinn... dó
Þriðji ormurinn... dó
Fjórði ormurinn... lifði...
En hvað kennir þetta okkur ?
Eins lengi sem þú drekkur, reykir og stundar kynlíf
færðu ekki orma !
.....................................................................................
Af hverju eru ljóskur alltaf hárlausar að neðan ?
Því þær snúa dömubindunum alltaf öfugt
.....................................................................................
Hvernig kemurðu einhentri ljósku niður úr tré?
Þú veifar til hennar.",
.....................................................................................
Hvernig deyja heilasellur ljósku?
Einmana...",
.....................................................................................
Afhverju vinna ljóskur alla daga vikunnar?
Svo að þú þurfir ekki að endurþjálfa þær á mánudegi.
.....................................................................................
"Mamma, mamma ég vill ekki heimsækja afa í dag"
mamman: Þegiðu drengur og halltu áfram að grafa!
.....................................................................................
23 hlutir til að gera bíóferð skemmtilega..!
1. Ef þú ert efst í salnum kastaðu eina krónum niður á
salinn
2. Öskraðu: Poppstríð!!!!! og hentu fullt af poppi
3. Ef þetta er sorgleg mynd gráttu þá á öxl einhvers
ókunnugs sem er við hliðina á þér
4. Ef þú hefur séð myndina talaðu þá með þegar hver
setning kemur...nokkuð hátt
5. Hoppaðu upp þegar eitthvað fyndið eða flott gerist
6. Hlæðu mjög hátt
7. Heltu smá gos á mannin/konuna fyrir neðan þig og ef
hún /hann snýr sér við segðu að þetta var sá sem situr
við hliðin á þér
8. Farðu í hvísluleik
9. Þegar þú labbar á sviðinu fyrir framan tjaldið,
þykistu detta og farðu að gráta í plati
10. Segðu, ef þetta er mynd þar sem eru búningar notaðir
(s.s. batman, Harry Potter) að þú eigir þennan búning og
farðu að monta þig geðveikt mikið
11. Farðu í eitthvað sæti sem að einhver er í og segðu
að ef hann færir sig ekki þá segirð þú mömmu/pabba þínum
og hótaðu honum það á meðan myndinni á stendur
12. Spurðu um smokka í sjoppunni, ef þú færð hann
hlauptu inn á klósett og segðu: Anna ég fékk hann!!!!!!
13. Taktu með prumpublöðru og sestu á hana
14. Sníttu þér á gólfið
15. Settu ekki símann á silent heldur á loud
16. Segðu upphátt hvað gerist næst
17. Taktu með kodda og sæng inn í bíóið
18. Stattu á sviðinu og öskraðu: I am your new ruler
19. Farðu með skopparabolta og bombaðu honum eitthvert í
salinn.
20. Taktu mjög mikið af sessum (dót sem lætur þig sitja
hærra) og sestu þar sem margir eru fyrir aftan þig
21. Dansaðu á sviðinu í hléinu
22. Feldu gosið hjá manneskjunni sem situr við hliðin á
þér
23. Spurðu í sjoppunni hvort þú megir fá 50% afslátt því
að þú borgaðir fullt verð fyrir miðann
.....................................................................................
100 skemmtileg ráð til að panta pizzu :
1. Ef þú ert með tónvals-síma, þá skaltu ýta af og til á
takkana. Biddu síðan manneskjuna sem er að taka við
pöntuninni um að hætta þessu.
2. Búðu til "feik" kortanúmer og athugaðu hvort að
viðkomandi taki við númerinu.
3. Notaðu "ýkt" mikið slangur þegar þú pantar pizzuna.
("Meikaðu eina þokkalega feita slæsu með plenty tjís á
kantinum ..")
4. Segðu þeim að senda pizzuna, og spurðu hvort að
sendillinn geti komið við á Macdonalds fyrir þig ot
tekið einn "Big Mac" með fyrir þig í leiðinni.
5. Ljúktu símtalinu með því að segja: "Mundu .. að við
áttum aldrei þetta samtal."
6. Segðu þeim sem að tekur pöntunina að
samkeppnisaðilinn sé á hinni línunni og þú ætlir að taka
besta boðinu.
7. Gefðu þeim upp heimilisfangið hjá þér .. segðu síðan
"Komdu mér á óvart" og legðu á.
8. Svaraðu þeirra spurningum með spurningum.
9. Með mjög blásandi röddu .. segðu þeim að þér sé
skítsama um alla næringu og heilsufæði .. þú viljir bara
eitthvað hrrrrikalega fitandi.
10. Bættu þessum orðum inní samtalið: AFTURHALDSHYGGJA -
KEIKÓ - BÓNUSFERÐIR - FLÖSUR
11. Segðu þeim að þú viljir hafa skorpuna ofaná í þetta
skiptið.
12. Syngdu pöntunina við eitthvað gott Metallica lag.
13. Ekki segja hvað þú viljir á pizzuna - heldur skaltu
stafa það.
14. Talaðu mjög smámælt þegar þú segir "sósa" og "ostur"
.
15. Stamaðu á öllum "p" orðum.
16. Ef þú hringir í Pizza 67 skaltu spyrja hvort
viðkomandi viti hvaða tilboð Hrói Höttur er með .... (og
öfugt).
17. Spurðu viðkomandi hvernig hann sé klæddur.
18. Láttu braka í puttunum á þér þegar þú talar (nálægt
símtólinu)
19. Segðu "halló" ... síðan skaltu þykjast vera undrandi
og soldið ruglaður í svona fimm sekúndur .. og láttu
síðan líta út fyrir að þau hafi hringt í þig.
20. Bunaðu út úr þér pöntununni. Ef þau spyrja hvort þú
viljir gos með þessu, þá skaltu "panikera" og verða utan
við þig.
21. Segðu viðkomandi að þú sért eitthvað dapur. Reyndu
að láta hann/hana lífga þig upp.
22. Búðu til lista yfir mjög framandi álegg. Pantaðu þau
sem álegg.
23. Skiptu um hreim á þriggja sekúndna fresti.
24. Pantaðu 52 pepperoni sneiðar og láttu raða þeim í
blómamynstur á pizzuna.
25. Láttu sem þú þekkir viðkomandi: "Bíddu ... vorum við
ekki saman í Vatnaskógi?"
26. Byrjaðu pöntunina á því að segja "Ééééég æææætla að
fáááá ............" bíddu í smástund, sláðu þig þá í
framan og segðu "NEI .. ég ætla ekki að fá það"
27. Ef þau endurtaka pöntunina fyrir þig í lok
símtalsins .. segðu þá "Ok .. þetta verða þá 1299 .. þú
borgar í næstu lúgu".
28. Reyndu að leigja þér pizzu.
29. Pantaðu á meðan þú ert að brýna hnífinn þinn.
30. Spurðu hvort þú megir eiga pizza kassann. Þegar þau
segja "já" skaltu þykjast verða rosalega feginn.
31. Settu ákveðna áherslu á endann á öllum orðum. T.d.
"i" í pepperoni .. (Prófaðu ..)
32. Þegar þú ert spurður hvernig þú viljir pizzuna ..
segðu þá "Shaken .. not stirred".
33. Segðu: "Ertu viss um að þetta sé (viðkomandi pizza
staður)?" Þegar þau segja já, segðu þá
: "Jæja .. þetta er líka þar! Þú þarft nú að útskýra
ansi margt!" Þegar þau biðja um einhverskonar
sönnun fyrir því að þú sért í rauninni viðkomandi pizza
staður, byrjaðu þá að vola og spurðu:
"Veistu hvernig það er að láta ljúga að sér?"
34. Færðu tólið alltaf lengra og lengra frá eftir því
sem líður á samtalið. Í lok símtalsins skaltu færa það
snöggt til baka og öskra "BLESSSSS ......." af öllum
lífs og sálarkröftum.
35. Biddu þau um að dobbel tékka á því hvort pizzan sé
ekki örugglega dauð þegar hún kemur úr ofninum.
36. Hermdu eftir röddinni á þeim sem tekur við
pöntuninni.
37. Útilokaðu öll sagnorð þegar þú pantar.
38. Þegar þú ert spurður "Hvað viltu?" Segðu þá ... "Ehh
.. ertu að meina núna .... eða á pizzuna?"
39 Spilaðu country tónlist á bakvið og talaðu með mjög
ýktum western hreim.
40. Segðu að þetta sé brúðkaupsafmælið þitt og spurðu
hvort að sendillinn sé til í að fela
sig í runnunum fyrir framan hjá þér og koma konunni á
óvart með pizzunni.
41. Skemmtu þeim sem að tekur við pöntuninni með lítt
þekktum staðreyndum úr Country-tónlistar heiminum.
42. Spurðu hvort að það sé hægt að senda matseðil heim
til þín.
43. Talaðu stjórnmálalega, og biddu um uppreiknað verð
pizzunnar með tilliti til flatra ríkisbundinna vaxta.
44. Segðu að þú getir borgað þetta þegar að fólkið sem
ætli að fjármagna kvikmyndina þína hringi til baka.
45. Spurðu þau hvort þau geri sér nokkra grein fyrir því
hversu mikið velti á þessari pizzu!!
46. Spurðu með hvaða áleggi þau mæli með 83 árganginum
af Chatenau Du Pape.
47. Ropaðu beint í tólið og segðu síðan "Skamm skamm ..
vondur hundur."
48. Pantaðu sneið .. ekki heila pizzu.
49. Öskraðu "Ég er búinn að fá nóg af
kvenfólki/karlmönnum. Sendu mér flottasta sendilinn
þinn!!
50. Farðu að hrjóta örlítið í miðri pöntun ... síðan
skaltu hrökkva við og segja "Hvar var ég .... hver ert
þú?"
51. Sálgreindu þann sem tekur við pöntuninni.
52. Hringdu ... spurðu hvaða símanúmer þetta sé ..
skelltu síðan á ... gerðu þetta svona 5 sinnum áður en
þú pantar loksins.
53. Pantaðu einhver tvö álegg .. segðu síðan "Nei ..
bíddu aðeins .. þau lenda alltaf í slag."
54. Lærðu að bera fram innihaldslýsinguna í "Snickers"
og pantaðu það síðan orðrétt á pizzuna þína.
55. Hringdu og kvartaðu undan þjónustunni. Hringdu 5
mínútum síðar og afsakaðu þig með því að þú hafir verið
fullur og ekki meint neitt með þessu.
56. Biddu viðkomandi um að biðja yfirmann sinn um að
segja framkvæmdarstjóranum að hann sé rekinn.
57. Hringdu og tilkynntu þjófnað.
58. Notaðu upphrópanir eins og: "Jeremías minn einasti
.. " og "Hjálpi mér allir heilagir .."
59. Biddu um þann sem tók pöntunina þína síðast afþví að
"hann skilur mig".
60. Ef að hann/hún stingur uppá tilboði, segðu þá með
mjög væminni röddu: "Ég læt ekki fallast í freistni yfir
þínum freistandi orðum"
61. Hugsaðu upphátt um hluti einsog "Þvílík nasahár ..
ég ætti að gera eitthvað í þessu".
62. Reyndu að panta og drekka eitthvað um leið.
63. Byrjaðu samtalið á þessum orðum "Ég að hringja í
Pizza stað, taka eitt ... ooooooogggg .... action!"
64. Spurðu hvort að þetta sé lífrænt ræktuð pizza.
65. Fáðu upplýsingar um viðhalds og varahlutaþjónustu
við pizzuna.
66. Vertu mjög varkár í gegnum alla pöntunina.
67. Þegar þau endurtaka pöntunina ... segðu þá "Flott ..
einu sinni enn .. og reyndu að finna þig í þetta skipti
... vertu pizzan .. vertu pizzan."
68. Ef þú ert með tónvalssíma ... ýttu þá á 9-1-1 á 5
sekúndna fresti.
69. Þegar þú ert búinn að panta, segðu þá "Hmm .. hvað
gerir þessi takki eiginlega". Hermdu eftir því að
samtalið hafi slitnað.
70. Byrjaðu samtalið á því að segja dagsetninguna og
tímann og segðu síðan "Þetta er líklega síðasta pöntunin
mín ........"
71. Pantaðu .. og segðu síðan að þetta samband ykkar
komi ekki til með að ná lengra en þetta.
72. Spurðu hvort þau kannist við deig-meðferðina "Pizza
búmm". Búðu til lýsingu á því hvað þetta þýðir og biddu
um að þetta sé gert við pizzuna þína.
73. Segðu "Ksssssssssssssssssssssht" frekar hátt í
símann ... og síðan "Wowwww .... fannstu fyrir þessu".
74. Segðu viðkomandi að hann sé með mjög fallega áru
.... reyndu að nýta þér þetta sem afslátt.
75. Þegar þú ert að fara yfir álegginn ... skaltu lauma
inn annari pizzu tegund. Dæmi: "Pepperoni, Ananas,
Americano, Paprika ..."
76. Lærðu að spila blús riff á munnhörpu .. stoppaðu
reglulega til að spila riffið.
77. Spurðu hvort að viðkomandi vilji smakka pizzuna þína
.. og hvort þú megir smakka uppáhaldstegundina hans.
78. Hermdu eftir Davíð Oddssyni og segðu að þú viljir
ekki að einhver "pizzu-krakka-bólu-fésa-auli fokki upp
pöntunninni".
79. Settu þau á "hold"
80. Kenndu viðkomandi einhvern leynikóda og notaðu þann
kóda við allar pantanir framvegis.
81. Laumaðu útúr þér "Það er sprengja inná staðnum".
Þegar viðkomandi biður þig um að endurtaka þetta skaltu
segja:
"Fengi ég tilboð ef ég væri á staðnum."
82. Byrjaðu á því að panta sveppi ... í lokin skaltu
segja "Og alls enga sveppi". Skelltu á áður en þú færð
viðbrögð.
83. Þegar að pöntunin er endurtekin fyrir þig .. breyttu
henni þá aðeins ... breyttu henni aftur í annað skiptið
... og í það þriðja skaltu segja:
"Þú bara nærð þessu ekki ... DJÍSESS ......"
84. Þegar þau segja verðið, skaltu segja "Whooo ...
þetta hljómar alltof flókið .. ég kann ekkert í
stærðfræði".
85. Prúttaðu.
86. Biddu um tveggja tommu pizzu.
87. Spurðu hvaða líftryggingar þau bjóði uppá.
88. Þegar þau spyrja "Er þetta þá komið?", segðu þá "Það
kemur bara í ljós ... er það ekki."
89. Biddu um að kassinn verði með blindraletri.
90. Spurðu hversu margir höfrungar þurftu að deyja fyrir
þessa pizzu.
91. Meðan þú pantar ... skaltu fara í mútur .. skipta
oft um rödd .. og verða vandræðalegur.
92. Bjóddu einhverskonar skipti díl.
93. Aldrei nota orðið "pizza". Reyndu að komast hjá því
á allan mögulegan máta. Ef að hann/hún segir það skaltu
segja "AAAArrgg ... ekki segja þetta orð."
94. Láttu mynd með góðu bílaeltingar atriði rúlla í
vídeóinu og stilttu hljóðið frekar hátt. Þegar skotið er
úr byssu skaltu öskra "ÁÁÁ !!"
95. Ef að hann/hún stingur uppá einhverju með
pöntuninni, spurðu þá: "Afhverju ertu að reyna að refsa
mér?".
96. Spurðu hvort að þessi pizza sem þú pantaðir þér sé
hreinræktuð og hvort að það sé til ættartafla með henni.
97. Biddu um gufusoðna pizzu.
98. Biddu um nafnið á þeim sem að tók við pöntuninni
(segjum að hann heiti Kristján). Hringdu síðan á slaginu
á heila tímanum og segðu "Kristján .. þetta er
vöknunarþjónustan. Klukkan er þrjú!!" Skelltu á.
99. Reyndu að fá að greiða fyrir pizzuna með þjónustu í
þágu almennings.
100. Ef eitthvað af undanförnu er hafnað af pizza
staðnum, segðu þá væminni röddu "Þeir á hinum pizza
staðnum leyfa mér alltaf að gera þetta."
.....................................................................................
Leiðarvísir um lífið
Þú skalt umgangast þá sem
umgangast þig
Láttu ekki vatnið renna meðan þú burstar tennurnar
Gefðu aldrei nokkrum manni jólaköku
Horfðu aldrei á kjötiðnaðarmenn að störfum
Vertu einhvern tímann viðstaddur réttarhöld
Finndu þér sæti fremst þegar þú ferð á fundi
Láttu ekki eignir þínar eignast þig
Farðu í stríð við ruslið
Sendu fullt af jólakortum
Höggðu sjálfur í eldinn
Gleðstu yfir velgengni annarra
Deildu heiðri
Lestu fyrir börnin þín
Syngdu fyrir börnin þín
Hlustaðu á börnin þín
Hafðu ökuljósin kveikt
Aktu ekki of nálægt öðrum
Gerstu líffæragjafi
Gerðu meira en ætlast er til
Eigðu vin sem á húsbíl
Hældu þremur manneskjum á dag
Eigðu hund
Mundu afmælisdaga
Vertu almennilegur við gengilbeinur
Horfðu á sólina koma upp minnst einu sinni á ári
Heilsaðu með þéttu handtaki
Horfðu í augu fólks
Lærðu að elda góða kjötkássu
Plantaðu blómum á hverju vori
Eigðu vönduð hljómtæki
Vertu fyrri til að heilsa
Lifðu ekki um efni fram
Vertu í burstuðum skóm
Notaðu tannþráð
Vertu fyrri til að slá frá þér
Skilaðu öllu sem þú færð að láni
Taktu einhvern tíma að þér kennslu
Taktu einhvern tíma þátt í námskeiði
Kauptu aldrei hús án arins
Hafðu klukkuna þína fimm mínútum fljótari
Lærðu erlend mál
Borgaðu reikningana tímanlega
Spilaðu körfubolta
Taktu einhvern með þér í keiluspil
Lærðu að fara rétt með skotvopn
Slökktu á sjónvarpinu í matartímanúm
Syngdu í kór
Kynnstu góðum lögfræðingi,endurskoðanda og pípara
Gefðu þér tíma til að anda að þér rósailmi
Stefndu að snilld en ekki fullkomleika
Stattu upp þegar þú syngur þjóðsönginn
Vertu djarfhuga en góðhjartaður
Notaðu öriggisbeltin
.....................................................................................
Vissir þú....
Það er ekki hægt að sleikja á sér
olnbogann!
Krókódíll getur ekki stungið út úr sér tungunni!
Hjarta rækju er í hausnum á henni!
Í rannsókn á 200.000 strútum í yfir 80 ár hefur ekki
einn stungið hausnum í sand!
Svín geta ekki horft til himins!
Rúmlega helmingur fólks í heiminum hefur hvorki hringt
né svarað í síma!
Rottur og hestar geta ekki ælt!
Rottur fjölga sér svo hratt að eftir 18 mánuði geta tvær
rottur átt milljón afkomendur!
Súperman kemur fyrir í hverjum einasta sjónvarpsþætti af
Seinfeld!
Kveikjari var fundinn upp á undan eldspýtum!
35% þeirra sem auglýsa í einkamáladálkum eru þegar
giftir!
"Kvak" anda bergmálar ekki og enginn veit afhverju!
23% bilana í ljósritunarvélum stafa af því að fólk hefur
reynt að ljósrita á sér óæðri endann!
Þú munt sennilega borða 70 skordýr og 10 köngulær í
svefni um ævina!
Að flestir varalitir innihalda fiskihreistur!
Allir hafa persónugreinanleg tunguför eins og fingraför!
Rúmlega 75% allra þeirra sem lesa þetta munu reyna að
sleikja á sér olnbogann!
Sterkasti vöðvinn í líkamanum er tungan!
Stelpur blikka tvisvar sinnum oftar en strákar!
Algengasta nafnið í heiminum er Mohammed!
Kakkalakki getur lifað í 9 daga .... án þess að hafa
haus!
Ef kolkrabbi er nógu svangur getur hann borðað 1 af
örmum sínum!
Svört ekkja, sem að borðar kallana sína eftir mökun,
getur borðað allt að 25 kalla á dag!
Venjulegt rúm er heimili fyrir u.þ.b. 6 milljarða
rykmaura!
Býflugur "hita upp" áður en að þær fljúga!
Andrés Önd er bannaður í Finnlandi vegna þess að hann er
ekki í buxum!
Ef að þú gerir strik með krít hliðina á maur fer hann
ekki yfir það!
Það er líklegra að þú deyjir vegna fljúgandi
kampavínstappa en banvænni könguló!
Það er líklegra að þú deyjir fyrir sök asna (dýrsins
sko) enn í flugvél!
Venjuleg kona talar u.þ.b. 7000 orð á dag, en venjulegur
maður aðeins 2000!
Belgar reyndu einu sinni að dreifa pósti sínum með
köttum! (það virkaði ekki)
Það er ekki hægt (í alvörunni) að hnerra með augun opin!
Augun stækka ekkert frá fæðingu!
Walt Disney var hræddur við mýs!
Ef þú myndir öskra í 8 ár, 7 mánuði og 6 daga myndir þú
búa til næga orku til að hita 1 kaffibolla
Ef þú myndir reka við stanslaust í 6 ár og 9 mánuði
myndast gas sem jafngildir krafti atómsprengju
Fullnæging svína stendur í 30 mínútur.
Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum
á klukkutíma
Menn, höfrungar og einhver tegund af simpönsum eru einu
tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar
Rétthent fólk lifir að meðaltali 9 árum lengur en
örvhentir
Maurar geta lyft 50 faldri þyngd sinni, togað 30 falda
þyngd sína og þeir falla alltaf á hæri hliðina þegar
þeir verða drukknir
Ísbirnir eru örvhentir
Leirgedda (það er fiskur) er með 27,000 bragðkirtla
Flóin getur stokkið 350 falda lengd sína, það svipað og
maðurinn stökkvi yfir fótboltavöll
Sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag
Fiðrildi eru með bragðlaukana á fótunum
Augu strútsins er stærra en heilinn
Stjörnufiskar hafa engan heila
.....................................................................................
ÉG elska þig á 63 tungumálum
AFRÍSKA - Et het jou lief,
ALBANÍSKA - Te dua,
ARABÍSKA - Ohipak,
ARMANÍA - Yes kez sirumen,
BAMBARA - M"bi fe,
HVÍTA RÚSSLAND - Ya tabe kahayu,
BENGALÍA - Ami Tomake Bhalobasi,
BOSNÍA - Volim Te,
BÚLGARÍA - Obicham te,
CAMBODÍA - Soro lahn nhee ah,
CORSICA - Ti tengu caru,
CROATÍA - Volim te,
DANMÖRK - Jeg Elsker Dig,
ENGLAND - I Love You,
ESPERANTO - Mi amas vin,
EISLAND - Ma armastan sind,
EÞEÓPÍA - Afgreki",
FILIPSEYJAR - Mahal kita,
FINNLAND - Minä rakastan sinua,
FRANSKA - Je t´aime,
FÆREYJAR - Eg elski teg,
RÚSSNESKA - Mikvarhar,
GRÆKENLAND - S´agapo,
GRÆNLAND - Asavakit,
HAWAII - Aloha wau ia oi,
HEBRENSKA - Ani ohevet othah,
HOLLAND - Ik hou van jou,
INDÓNESÍA - Saya cinta padamu,
IRLAND - Taim i"ngra leat,
ISLAND - Eg elska Þig,
ÍTALSKA - Ti amo,
JAPAN - Aishiteru,
KINA - Ngo oiy ney a,
KOREA - Sarang Heyo,
LATINA - ego te amo,
LETLAND - Es tevi miilu,
LIBANON - Bahibak,
LITHAUEN - Tave myliu,
MALAYA - Saya cintakan mu,
MAROCCO - Ana moajaba bik,
NORGE - Jeg elsker deg,
POLSKA - Ja cie kocham,
PORTUGAL - Eu te amo,
RÚMEINÍA - Te ubesk,
RUSSLAND - Ya tiebia liubliu,
SAMOA - Alofa au ia oi,
SERBÍA - Volim te,
SLOVENÍA - Ljubim te,
SPÁNN - Te quiero,
SRI LANKA - Mama Obata Aadarei,
SVÍÞJÓÐ - Jag älskar dig,
SWAHILI - Nina ku panda,
SWITZERLAND - Ich lieb Di,
TAIWAN - Wa ga ei li,
TAMIL - Nan unnai kathalikaraen,
THAHITTI - Ua Here Vau la Oe,
TYRKLAND - Seni sevijorum,
ÞÝSKALAND - Ich liebe dich,
UKRAENA - Ya tebe kahayu,
URDU - Mai aap say pyaar karta hoo,
VESTJYLLAND - A ka så godt li" dæ,
VIETNAM - Anh ye"u em,
JÚGOSLAVÍA - Ja te Volim
.....................................................................................
Hvernig á að fitta inní hópinn
Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í
honum með sólgleraugu. Miðaðu með hárþurrku á bílana sem
keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á sér.
Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI
reyna að breyta rödd þinni.
Stattu föst á því að netfangið þitt sé:
Xena-Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða
Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca
Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað
fyrir sig, spyrðu "má bjóða þér franskar með þessu?"
Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem
segir "Innbox"
Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót.
Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur.
Þegar allir eru búnir að losna við koffínfíknina,
fyllirðu á með espresso.
Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.
Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.
Ekki nota punkta
Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga.
Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar
það hefur svarað.
Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín
sé "taka með".
Syngdu með í óperunni
Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan
ryþma.
Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu
frumskógarhljóð af diski alla daga.
Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú
komir ekki því þú sért ekki alveg upplögð.
Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator-nafni
þínu, Rock Hard.
Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú "Ég
vann! Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!"
Og að lokum, síðasta ráðið til að halda uppi mátulegri
geðveiki í hversdagsleikanum:
Sentu þetta bréf áfram til allra í netfangaskrá þinni,
líka þeim sem hafa sent þér þetta og einkum þó þeim sem
hafa sérstaklega frábeðið sér ÖLL svona bréf.
.....................................................................................
Hlutir sem gaman væri að gera á
salerninu
1 Settu hendina undir millivegginn og
biddu \"nágrannan\" að lána þér meiri pappír.
2 Segðu hátt: \"jakk, ég vissi að ég hefði ekki átt að
sleikja þetta\"
3 Klappaðu og hrópaðu húrrahrópum í hvert skipti sem
einhver mígur, rekur við eða eitthvað annað ?
4 Segðu hátt \"hmmmm, ég hef nú ekki séð þennan lit
áður\"
5 Segðu hátt \"ahhhh!!!!! djöll er vatnið kalt\"
6 reyndu að stynja og orga eins lengi og þú getur, láttu
svo nokkrar kartöflur detta ofan í skálina og andvarpaðu
svo djúpt!
7 Segðu hátt \"neeihhh,, hvernig komst þetta þangað
!??\"
8 Segðu hátt \"pizza..... minnir mig á pizzu.... með
pepperoni\"
9 Fylltu 2.l kókflösku og sprautaðu svo undir veggina
yfir í hina básana og öskraðu \"rólegur litli minn!!!
rólegur !!!!\"
10 Segðu hátt \"merkilegt! það eru fleiri sem fljóta
heldur sem sökkva\"
11 Segðu hátt \"æææ, kommon herra.stubbur, ekki sofna
núna !\"
12 Spilaðu eitthvað vel þekkt lag á rasskinnarnar
13 Hentu brjósthaldara á gólfið (svo allir sjái hann) og
syngdu svo ástöfum \"ég er frjáls\" lagið...
.....................................................................................
Nokkur fáranleg orð á kínversku
1) That's not right - Sum Ting Wong
2) Are you harboring a fugitive? - Hu Yu Hai Ding?
3) See me ASAP - Kum Hia Nao
4) Stupid Man - Dum Gai
5) Small Horse - Tai Ni Po Ni
6) Did you go to the beach? - Wai Yu So Tan?
7) I bumped into a coffee table - Ai Bang Mai Ni
8) I think you need a face lift - Chin Tu Fat
9) It's very dark in here - Wai So Dim?
10)I thought you were on a diet - Wai Yu Mun Ching?
11) This is a tow away zone - No Pah King
12) Our meeting is scheduled for next week - Wai Yu Kum
Nao?
13) Staying out of sight - Lei Ying Lo
14) He's cleaning his automobile - Wa Shing Ka
15) Your body odor is offensive - Yu Stin Ki Pu
16) Great - Fu Kin Su Pah
.....................................................................................
Að keyra eins og gömul kona
1. Haltu utan um stýrið þannig ad
vinstri hendi sé á klukkan 10 og hægri hendi kl.2
2. Beygðu þig niður í sætinu þannig ad tú rétt sjáir
yfir stýrishjólið.
3. Þá mátt sleppa reglu #2. svo lengi sem þú situr með
bakið þétt upp að sætisbakinu og látir hnakkann alltaf
koma við hauspúðann. Mundu þá að horfa einungis uppí
þakið á bílnum en alls ekki götuna.
4. Þú verður að keyra á litlum bíl (Ford Fiesta, VW Polo
o.s.frv.)
5. Aldrei aka hraðar en 10 km. undir hámarkshraða
innanbæjar og 20 undir hámarkshraða utanbæjar. ATH: Ef
þú vilt fylgja reglunum út í ystu æsar, þá er gott að
vera alltaf á vinstri akgrein.
6. Notaðu að minnsta kosti 6.5 sekúndur til að skipta um
akgrein.
7. Aldrei nota stefnuljós (nema þú sért ekki að fara
beygja, þá er gott að keyra með þau í gangi).
8. Ef að það er beygju-frárein til vinstri, mundu þá að
hafa helminginn af bílnum á þeirri akgrein og helminginn
á akgreininni hægra megin við þig. Ekki leggja af stað
til vinstri fyrr en græna ljósið er alveg að verða búið,
þannig að bara þú komist yfir.
9. Aldrei nota stefnuljós þegar þú leggur í stæði.
Einnig er gott að nota eitt og hálft stæði. það þykir
mjög gott að ná því taka 2-3 stæði í einu.
10. Ekki athuga með umferð fyrir aftan þig þegar þú
bakkar úr stæði.
11. Þegar þú ferð útúr bíl eftir að hafa lagt í stæði,
reyndu þá að láta hurðina rekast í næsta bíl við hliðina
á þér.
12. Hægðu alltaf á þér þegar þú kemur að gatnamótum,
jafnvel þó að ljósið sé grænt. Best er að hægja svo
mikið á, að ljósið verði rautt, akkúrat þegar þú ert að
koma að því.
.....................................................................................
52 leiðir til að losna af
hræðilegu deiti
1. Vertu með hnífinn og gaffalinn á
lofti allan tímann og urraðu á alla sem koma nálægt þér
og matnum þínum!
2. Safnaðu öllum saltstaukunum á borðið hjá þér og
reyndu að raða þeim í pyramida!
3. Snyttu þér í ermina hjá "deitinu"..tvisvar.
4. Grettu þig framan í aðra gesti staðarins... horfðu
svo á það með fyrirlitningarsvip!
5. Endurtaktu alltaf þriðja þrjðia orðið í hverri hverri
setningu!
6. Segðu að þú hafir verið valinn skítugasti nemandinn í
skólanum þínum 3 ár í röð
7. Lestu dagblað eða bók... láttu einsog þú sjáir ekki
deitið
8. Starðu á hálsinn á deitinu... og gnístu tönnunum hátt
9. Vertu með mikla kippi um allan líkamann, svo þegar þú
verður spurður um þetta, láttu einsog þú vitir ekki hvað
er verið að tala um !
10. Stattu upp á 5 mínútna fresti, og hermdu eftir
flugvél og fljúgðu nokkra hringi í kringum borðið
11. Pantaðu eina fötu af steikingarfeiti
12. Biddu um vaxliti og litabók
13. Flautaðu og geltu þegar konur labba framhjá
borðinu.... gerðu þetta sérstaklega ef þú ert sjálf
kona!
14. Farðu í gegnum alla stefnumótasögu þína... skreyttu
sögurnar aðeins.... reyndu að segja frá einhverjum
húsdyrum
15. Spilaðu á harmonikku í hvert skipti sem deitið
reynir að segja frá sjálfri sér
16. Fórnaðu frönsku kartöflunum fyrir guðinn, Pomme!
17. Spurðu hvort veitingastaðurinn sé með einhvern
lifandi mat
18. Borðaðu af disknum hjá deitinu!
19. Slefaðu!
20. Tyggðu með opinn munninn, talaðu með fullann munninn
og frussaðu um allt!
21. Borðaðu allt af disknum þínu á innan við 30sek eftir
að hann er borinn á borð
22. Afsakaðu þig til að fara á klósettið, farðu til
yfirþjónsins og biddu um annað borð annarsstaðar í
húsinu. Sestu þar og pantaðu aðra máltíð. Svo þegar
deitið loksins finnur þig, kvartaðu yfir hvað hún/hann
var lengi á klósettinu!
23. Fáðu fólkið á næsta borði til að kveðast á við þig
24. Biddu fólkið á næsta borði að gefa þér afgangana
25. Grátbiddu deitið að tattoo-a nafnið þitt á lærið á
deitinu..... haltu áfram að biðja um þetta út allt
kvöldið
26. Spurðu deitið hvað það sé með mikinn pening
27. Pantaðu eitthvað virkilega ógeðslegt fyrir deitið
28. Notaðu táknmál allt kvöldið... finndu upp þitt eigið
táknmál
29. Þegar þið komið á veitingahúsið, biddu um borð sem
er langt frá gluggunum og þar sem þú getur setið uppvið
vegg... láttu einsog þú sért verulega stressaður!
30. Sleiktu diskinn þinn! ...prófaðu að bjóðast til að
sleikja aðra diska
31. Hummaðu hin og þessi lög
32. Fylltu vasana af sykurbréfum og saltstaukum og
piparstaukum og hnífapörum og blómaskreytingum...
hreinlega öllu sem er ekki skrúfað fast!
33. Haltu fyrirlestur.. vertu bæði með og á móti!
34. Afklæddu deitið munnlega... notaðu gjallarhorn
35. Reyndu að skipta á deitinu og hnífapörum annara
gesta
36. Farðu undir borðið... taktu diskinn með þér !
37. Pantaðu bakaða kartöflu... feldu svo kartöfluna og
pantaðu aðra... svo þegar þjóninn kemur með hana, vertu
þá búinn að setja hina á sinn stað
38. Pantaðu nautstungu og vertu með ymsar samlíkingar
39. Taktu með þér púsl!
40. Talaðu um bólur og fílapensla... segðu frá eigin
reynslu
41. Pegðu Palltaf P Pá Pundan Pöllum Porðum!
42. Farðu á klósettið og svo þegar þú kemur til baka,
hentu á nærbuxum á borðið, segðu að þú bara verðir að
lofta aðeins út!
43. Ef að deitið borgar, pantaðu þá það allra dyrasta og
tyggðu nokkra bita og hræktu þeim jafnóðum útúr þér!
44. Taktu með þér 20-30 kerti og raðaðu þeim í kringum
borðið.... sönglaðu sálma
45. Safnaðu saman beinunum úr máltíðinni og segðu að þú
sért að taka þetta með heim til ömmu þinnar, því þetta
sé margfalt ódyrara en að gefa henni að "alvöru mat"..
46. Pantaðu matinn samkvæmt litum og munstri... búðu til
listaverk
47. Taktu hitabrúsa með og pantaðu kaffi og helltu því
yfir í hitabrúsann....fáðu fría áfyllingu og gerðu það
sama aftur
48. Haltu því fram að þjónninn hafi étið helminginn af
matnum þínum
49. Sakaðu deitið um að vera að njósna!
50. Segðu að þú sért að leita að fólki í söfnuðinn þinn
51. Stattu upp, beygðu þig og rektu við.... hneigðu þig
svo
52. Taktu með þér fötu.... segðu að þú verðið oft
alltíeinu veikur!
.....................................................................................
10 góðar afsakanir ef þú sofnar
i skola
1. "Þær sögðu mér í blóðbankanum að
þetta gæti gerst."
2. "Þetta er bara kortérs orkublundur eins og sagt var
frá á námskeiðinu sem þú sendir mig á."
3. "Vá! Ég gleymdi að setja tappann aftur á Tipp-exið.
Þú hefur líklega komið rétt á elleftu stundu."
4. "Ég var ekki sofandi! Ég var að íhuga
verkefnaviðmiðin og úthugsa nýjan rannsóknarramma."
5. "Ég var að prófa nýju slef-vörnina á bókinni minni."
6. "Ég var að framkvæma sérlega erfiða Jóga-æfingu til
að losa mig við stereituvald sem orsakast af
skóla-umhverfi mínu. Hefur þú eitthvað á móti
jógaiðkendum?"
7. "Fjárinn, af hverju varstu að trufla mig? Ég var rétt
að finna lausnina á stærsta vandamálin skólans."
8. "Kaffivélin er biluð ..."
9. "Það hefur einhver sett koffínlaust kaffi í vélina."
10. "... í Jesú nafni, amen."
.....................................................................................
Sanleikurinn um Coke
- Í mörgum fylkjum Bandaríkjanna hefur
vegalögreglan 10 lítra af Coke í bílnum hjá sér til að
þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.
- Þú getur sett T-bone steik í skál og fyllt upp með
Coke-i og steikin verður horfin eftir 2 daga.
- Til að hreinsa klósett; helltu einni dós af Coke ofan
í skálina, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo
niður. Sýran í Coke-inu leysir upp bletti.
- Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum og öðru
krómi; dýfðu krumpuðum álpappír í Coke og nuddaðu
krómið.
- Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum; helltu einni dós
af Coke yfir pólana.
- Til að leysa ryðgaða skrúfu; rennbleyttu tusku upp úr
coke og haltu henni við skrúfuna í nokkrar mínútur.
- Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði; helltu einni
dós af Coke í þvottavélina og bættu við þvottaefni og
þvoðu eins og venjulega. Coke-ið hjálpar til við að
leysa upp fitublettina.
- Coke hreinsar framrúðuna á bílnum þínum vel.
- Virka efnið í Coke er phosphoric acid.
- Ph gildi í Coke er 2.8, og það getur leyst upp nögl á
ca. fjórum dögum.
- Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa
vöruflutningabifreiðarnar að bera viðvörunarskilti sem
segir
MJÖG ÆTANDI EFNI.
- Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn til
að hreinsa vélar bíla hjá sér síðastliðin 20 ár.
- Ef þú drekkur hálfan lítra af Coke á dag umfram þá
orku sem þú brennir jafngildir það 15 kílóum af spiki á
ári.
Langar þig enn í hressandi glas af Coke?
Nei ég hélt ekki, fáðu þér bara PEPSI |
|