|
|
|
Hvernig laga má ping/latency:
Fyrsta sem þarf að gera er að fara eftir "Settu í 5ta gír" greininni.
Það sem skiptir máli þar er að keyra Spybot S&D og Ad-aware (svo að
engin blacklisted forrit séu að accessa netið). Hitt má svo bíða seinni
tíma.
Síðan er að fara í commanprompt ( Start -> Run og skrifa cmd og ýta á
enter ).
Skrifaðu svo tracert skjalfti.simnet.is. Þá áttu að fá eitthvað svona
(mismunandi eftir þjónustuaðlinum):
Tracing route to skjalfti.simnet.is [194.105.226.101]
over a maximum of 30 hops:
1 <1 ms <1 ms <1 ms gw.bunker.is [81.15.37.126]
2 <1 ms <1 ms <1 ms 213.220.99.201
3 1 ms 1 ms 1 ms MultiGigabit-11.backbone-hofdab1.linanet.is
[213.220.64.4]
4 2 ms 1 ms 2 ms fast-0-1-9.taeknig.linanet.is [62.145.130.65]
5 3 ms 3 ms 3 ms rix-gw.simnet.is [193.4.59.11]
6 4 ms 3 ms 3 ms ls-bb.isholf.is [157.157.173.202]
7 3 ms 3 ms 3 ms skjalfti.simnet.is [194.105.226.101]
Fyrsti dálkurinn er númer "hopsins", annar er max ping, þriðji er min og
síðasti er avg ping.
Ef þú sérð stórar tölur ( >60 ) strax á hopi 1-2 þá er eitthvað að
línunni trúlega ( getur fengið mann til að mæla hana ). Ef þú sérð
svipaðar tölur ( frá 10 í 50 ) þá er línan í lagi.
Ef þú ert hjá Símanum ( og þarft ekki að nota VPN samband utan Simnet (
t.d. til fyrirtækist )) þá skaltu fara í ADSL "testið" sem þeir bjóða
upp á. Þá tengiru þig beint inn á kerfið þeirra í stað þess að fara í
gegnum BBRAS routerinn
(sem routar adsl tenginum til mismunandi þjónustuaðilum). BBRASinn er
talinn vera ástæða laggs á Íslandi.
Nú skulum við fara að tweeka netcodeann í Half-Life (Counter-Strike/Day
of Defeat/etc.)
Half-Life netcodeinn er mjög "þróaður" ef svo má að orði komast. Hann er
gerður fyrir 56k módem (150+ í ping) ásamt því að hafa góðan stuðning
fyrir lowping.
Eftirtaldar skipanir er hægt að breyta sem hafa áhrif á netkóðann.br>
cl_updaterate
cl_cmdrate
rate
cl_rate
ex_interp
cl_cmdrate segir til um hversu marga pakka þú villt fá til þín þegar þú
spilar. T.d. þegar þú ert með 60 í cl_cmdrate þá færðu 60 pakka á
sekúntu.
cl_updaterate ræður því hvað marga pakka þú sendir frá þér á sekúntu.
rate segir til um hversu oft þú færð þetta ( þ.e. straumurinn ).
cl_rate segir til um stærð pakkana
ex_interp er einskonar "giskari"
Til að laga lagg/loss/choke þarftu að skrifa net_graph 3 í console. Þar
áttu að sjá eitthvað þessu líkt.
Efst til vinstri sérðu FPSið , til vinstri sérðu extra lagg (sést ekki á
myndinni), neðst til hægri sérðu chokeið og til vinstri sérðu lossið.
Til að laga loss þá lækkaru cl_updaterate. Fyrst skaltu gera í console
cl_updaterate og ath hvað skipunin er í.
Síðan skaltu lækka þetta um 5 í hvert skiptið (með góðri pásu). Ekki
fara undir 40 ef þú ert með ADSL+ tengingu.
Til að laga choke þá geriru það sama og með loss nema breytir cl_cmdrate
Ef þú ert hvorki með loss eða choke (með hátt ping) þá skaltu hækka eða
lækka rate um 500 í hvert skiptið (með góðri pásu).
rate er best að hafa óhreyft en sú skipun segir til um stærð pakkans í
bitum.
ex_interp tekur 2 pakka og tekur síðan meðaltalið á þeim (til að finna
út staðsetningu).
T.d. ef þú ert með 100 í update/cmdrate þá tekur ex_interp 10. hvern
pakka til að reikna út staðsetninguna.
Ef þú breytir þessu gildi þá minnkaru (eða stækkaru) bilið sem hún tekur
meðaltal af (t.d. 5ti hver pakki).
ATH!
ÞESSARI SKIPUN Á ALLTAF AÐ VERA Í 0.1, annað er talið vera
confighax(svindl)
|
 |
|
SERVERINN |
Ip:
192.168.251.3:27015
WarCraft 3
24-slots
open 24/7 Coming soon |





|