Góðir dagar í Istanbul

 

 

 

 

Áttum skemmtilega daga í Istanbul, sem er óendanlega fjölbreytt og falleg borg. Mæli þó ekki með henni fyrir þá sem ekki þola að ganga upp og niður miklar brekkur eða eru bílhræddir!!

En það er endalaust margt að skoða og hægt að vera á röltinu allan dagnin að sjá eitthvað nýtt, nú eða bara sitjaá kaffihúsi og slappa af! Mæli eindregið með að fólk setji þessa borg á listann.

 

  

 

Við bjuggum á Armada hótelinu í Sultanahmet. Yndislegt hótel sem má mæla eindegið mæla með.

Á þakinu er veitingahús og líka borðaður morgunmatur þar og útsýnið var ótrúlegt

- Bláa moskan og Hagia Sofia

 

 

Ef horft var í aðra átt var svo hægt að horfa út á Marmarasundið og á morgnana mátti fylgjast með

höfrungum leika sér innan um óteljandi skipin

 

 

 

 

Ástþóri Erni þótti voðalega gaman að heilsa upp á skjaldbökurnar sem eiga heima í andyri hótelsins

 

 

 

 

Borðuðum eitt kvöldið á þakinu og nutum matar og útsýnis. Hér er ég með Marmarasundið í baksýn

 

 

Ástþór Örn fékk Hagia Sofia í bakgrunninn hjá sér

 

 

Og Sigurður Bláu moskuna

 

 

 

Bláa moskan og fallegi garðurinn sem liggur á milli hennar og Hagia Sofia

 

   

 

 

 

Í garði bláu moskunnar

 

 

 

 

 

 

  

 

 

Við Sigurður vorum þau einu í hópnum sem vorum klædd til að fara inn og skoða...Viktor og pabbi þáðu ekki pilsin sem karlmönnum

var boðin að láni yfir stuttbuxurnar!!

 

 

 

Viktor með Hagia Sofia í baksýn

 

 

Það er verið að gera við Hagia Sofia og þess vegna ekki alveg hægt að skoða allt en

þrátt fyrir það var stórkostleg upplifun að koma þarna. Upprunalega var þetta kirkja sem síðar

var breytt í mosku

 

 

Þarna er hún María með Jesúbarnið innan um arabísku súrurnar

 

 

 

 

 

         

 

 

 

 

Inngangurinn á stóra basarinn, en þar kenndi ýmissa grasa og gaman að rölta

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn fékk Fes og Sigurður arabíska lopahúfu!!

 

 

 

Göturnar í kringum basarinn eru margar ansi skrautlegar og gaman að ganga niðurá egypska basar

 

 

 

En þar er aðaláherslan lögð á krydd, te og þess háttar

 

          

 

Gegnt kryddbasarnum er Nýja moskan

 

 

 

 

Skór burstaðir í gríð og erg

 

 

Með Galatabrúna í baksýn og Galataturn

 

 

Útsýni af Galatabrúnni

 

 

      

 

Og komin upp að Galataturninum

 

 

 

Eyddum degi í Beyogluhverfinu. Þar er gaman að rölta og hægt að velja hvort maður vill þramma stóra og

mikla verslunargötu eða halda sig í litlum götum með kaffihúsum og notalegheitum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ein af óskum Ástþórs Arnar í Istanbul var að komast í sporvagn og hér erum við mætt í einn slíkan!

 

 

 

Hélduð þið að ég væri að grínast með brekkurnar í Istanbul?!!? Ferð í Beyoglu er eins og að fara í góða fjallgöngu!

 

 

 

Og þess vegna oft ansi gott að setjast aðeins og hvíla sig

 

 

 

 

 

Ortaköymoskan sem stendur í Bosphorussundi

 

 

Og Bosphorusbrúin

 

 

 

Á torginu við Ortaköy moskuna hafði Ástþór Örn nóg að gera við að eltast við dúfurnar

 

 

 

Dúfurnar létu sér nú lynda dúfnaskelfinn Ástþór Örn en þegar þessi hvíti Síberíuhundur birtist hurfu þær allar upp í tré

 

 

 

 

Ástþór Örn hafði lítinn tíma í svona myndatökur enda nóg að gera í eltingaleik við dúfurnar

 

 

 

Settumst á notalegt og gott veitingahús við torgið

 

 

 

Ástþór Örn hafði nú lítinn tíma til að borða með okkur enda miklu skemmtilegra að hlaupa um eða spjalla við aðra krakka!

 

 

 

Fleiri Istanbulmyndir