Fleiri myndir frá Istanbul

Margt að sjá í Istanbul og myndirnar voru ansi fljótt orðnar voðalega margar!

Hverfið "okkar" var ógurlega notalegt og var oft komið við á þessum róluvelli sem
var rétt hjá hótelinu



Þessi göngugata er í Sultanahmet hverfinu ekki svo langt frá hótelinu, örskammt frá basarnum.
Aðallega eru þarna miklar, stórar og dýrar skartgripaverslanir en líka mörg kaffihús, antikbúðir og
hin dásamlega dekurbúð Abdulla!


Settumst oft og fengum okkur gott kaffi og Ástþór Örn kannaði kökuúrvalið

Getum svo mælt með kaffi Fes við alla sem og búðinni Abdulla við hliðina.
Lýsing hljómar hálf óspennandi en ég reyni...þar fást alls kyns sápur sem eru
alls ekki bara eins og sápur! Þar fæst líka alls kyns tyrkneskt baðdót...en baðhefð í
Tyrklandi er mun flóknari en bara að skella sér í sturtu! baðsloppar, skrúbbhanskar...
æ ég veit ekki hvort þið eruð að skilja mig?!!?

Á Fes kaffi
![]()

Umferðin í Istanbul er ekkert grín! Umferðareglur virðast alveg heimatilbúnar og okkur þótti ótrúlegt að verða ekki vinti af
einum einasta árekstri!!

Við vorum því ekki alveg viss um það hvort maður ætti að hætta sér upp í hestvagn, sem var efst á óskalista Ástþórs Arnar.
Við drifum okkur þó í ferð og var sem betur fer ekki nema örlítill hluti ferðarinnar farinn á götunum innan um bílana heldur var
farið um Topkapigarðinn, sem er mjög fallegur.


Hér má sjá yfir í Topkapi, sem var aðsetur soldána. Þeir ættu að geta haft það notalegt þarna!!



Fallegt útsýni úr Topkapi. Þarna má sjá Bosphorusbrúna og ef vel er rýnt í myndina Ortaköy moskuna vinstra megin við brúna!


Ástþóri Erni þótti þetta tré einna merkilegast...sem og ansi vel skreytt herklði soldánanna



Þetta var svona hvíldar- og leshús...myndi maður nokkuð gera annað en að lesa og hvíla sig ef maður ætti svona?

Ástþór Örn og lítill kettlingur í Topkapi. Það er allt fullt af köttum í Istanbul og brýndum við
fyrir Ástþóri Erni að klappa þeim ekki en þessu litla kríli freistaðist hann til að klappa...það var því
ágætt að hafa alltaf balutþurrkur í töskunni!!
![]()

Einn af mörgum litlum kisum sem við hittum. Það var verst að mega ekki bara knúsa þá og taka með heim!

Þessi kisi orðinn heldur þreyttari og eldri aftur á móti.




Við urðum vitni af ansi skemmtilegri uppákomu einn daginn í Sultanahmet. Ástþór Örn var fljótur að draga upp
myndavélina sína!

Þessir soldánar skemmtu okkur með söng og hljóðfæraleik í dágóða stund.
Ástþór Örn er sérlegur áhugamaður um soldána og var alveg dáleiddur!

Þessi stjórnaði og var jafnframt aðalsöngvari

![]()
Frá Istanbul fórum við með góðar minningar og mikla löngun í að koma þangað sem fyrst aftur. Ekki hægt að komast yfir nema brotabrot af öllu
á nokkrum dögum og því endalaus ævintýri sem bíða manns í svona litríkri borg!