Skútusigling

Fórum í dagsferð á skútu og skemmtum okkur öll mjög vel. Í ferðinni vorum við öll komin á það að reyna að komast sem fyrst í nokkra daga skútuferð eins fljótt og auðið væri!

Bærinn í fjarska

Sigurður og Viktor láta fara vel um sig í upphafi ferðarinnar

Ástþóri Erni þótti vissara að fylgjast vel með öllu, til dæmis sjóræningjum og sá víða með þessum ansi góða kíki!!

Stoppuðum í nokkrum víkum á leiðinni og Sigurður og Viktor réru í land,
hér fékk Ástþór Örn að fylgja þeim og fannst þetta allt ógurlega spennandi.

Á meðan vorum við nú bara í sólbaði á þilfarinu


Gæti vanist vel að eiga svona skútu og þurfa ekki að vera í sjógalla og ullarnærfötum í sjóferðum!!

Soner skipstjóri og Ástþór Örn kasta baruði til fiskanna

Barist um bitana

Viktor og Sigurður réru í land í annarri vík sem stoppað var í og fóru og könnuðu þennan kofa. Þar mætti þeim
fjárhúsalykt þar sem þetta er nú athvarf geita.

Á meðan við vorum að borða hádegismatinn heyrðum við mikið jarm í kiðlingi. Vorum farin að vorkenna honum heil ósköp og Ástþór Örn
farinn að hvetja okkur til að fara í land og aðstoða hann í leitinni að mömmu sinni. Við vorum því glöð þegar við hættum að heyra jarmið og
geit koma gangandi með þrjá kiðlinga stuttu seinna. Sjáið þær þarna fyrir miðri mynd!

Við mæðgin ansi ánægð á sjónum!


Þriðji könnunarleiðangur þeirra félaga!

Ástþór Örn dáleiddur af öldunum

Farin að nálgast bæinn aftur. Þarna má einmitt sjá kastalann vinstra megin.
![]()