Skógarferð með Bedi

 

 

 

 

Fórum á ótrúlega notalegan stað rétt fyrir utan Marmaris með Bedi vini okkar. Skógur sem liggur að ströndinni en okkur er lífsins ómögulegt að muna hvað þetta svæði heitir! Enda er tyrkneskan okkur enn fremur ótöm.

En þarna var ansi ljúft að vera, busla í sjónum, sóla sig eða rölta í skóginum og fylgjast með fiðrildum og íkornum. Bedi bjó til hádegismat, sem var svo góður að við gleymum honum seint!

 

 

 

Ástþóri Erni fannst ansi spennandi að sjá íkornana stökkva um allan skóg

 

 

 

Sjálfur var hann eins og lítill íkorni þegar hann stökk á eftir þeim og vildi ólmur fá þá í smá leik

 

 

Þeir feðgar óðu/syntu út á þennan pramma á uppblásna krókódílnum honum Kalla!

 

 

 

 

Tvier klifurkettir, Ástþór Örn og Bedi

 

 

 

Mikil klifurbaktería greip Ástþór Örn sem var í Tarzanleik mest allan tímann!!

 

 

 

 

 

Ástþór Örn kallaði skyndilega á mig þegar hann var kominn þarna upp í tré. Ég hljóp til hans og ætlaði að hjálpa honum niður

en þá sagði hann "nei mamma...þú þarft ekkert að hjálpa mér, ég vil bara fá mynd af mér"!!!!

 

 

 

Og auðvitað varð ég við því og tók fullt af myndum af þessum lipra klifurketti :o)

 

 

Eftir allt klifrið var aðeins buslað í sjónum. Drengurinn kom okkur sífellt á óvart með það hvað hann var frakkur að

fara og blanda sér í leik með krökkum. Sagði bara "merhaba" sem útleggst halló á tyrknesku svo var stundum látið

fylgja "my name is Ástþór Örn" nú eða bara töluð íslenska!!!

 

 

 

Þegar hér var komið við sögu hafði ég gert tilraun til að vera í svolítinn tíma í sólbaði og er ekki

frá því að ég hafi verið kominn með sólsting! Já og svo beið ég spennt eftir hádegismatnum!!

 

 

 

Bedi grillaði ótrúlega góðan mat og bjó til himnesk salöt með. Og fyrir þá sem ekki vita eru

tyrknesku brauðin þau bestu. Ég veit ekki hvernig ég liti út ef ég hefði aðgang að þeim hér í næsta húsi eins og þarna úti!!!

 

 

 

 

 

Sjóstangveiði