Ferð í Asparangarðinn
![]()
Umhverfis Marmaris eru margir ótrúlega fallegir staðir sem er gaman að heimsækja. Í fyrra fórum við til dæmis til Cinar en í ár fórum við með annars í Asparan, sem er garður í um það bil hálftíma akstursfjarlægð frá Marmaris.
Borðuðum þar mjög góðan hádegismat og höfðum það gott.


Beðið eftir hádegismatnum. Með okkur var hann Otur sem keyrði okkur í garðinn. Það er
nefnilega venjan í Tyrklandi að maður fær leigubíl til að keyra sig svona aðeins út fyrir eyðir
bílstjórinn bara deginum með manni! Það var því fínt að hann Otur var hinn indælasti og talaði
ágæta ensku. Hans stöð var líka sú sem var næst íbúðinni okkar og hann var því nokkurs konar
hirðbílstjóri ferðafélagsins í styttri ferðum!

Ástþór Örn var ansi spenntur fyrir öndum sem lágu á eggjum og nokkrum andarungum sem voru farnir að svamla um.
Hér er einn að hvíla sig svolítið!

Ástþór Örn að tína gúrkurnar úr salatinu!

Notalegt að sitja í þessum útiskála og borða góðan mat. Herramennirnir að ofan fengu sé tyrkneskan morgunverð en
við mæðgur fengum okkur uppáhald soldánsins...sem er nú orðinn uppáhaldsréttur hjá okkur líka.


Eftir matinn var hægt að halla sér aðeins og slappa af.

Í garðinum er mikið af skemmtilegum leiktækjum og líitl útgáfa af húsdýragarði

Ástþór Örn hefði vel getað hugsað sér að vera allan daginn í þessari hringekju!

Viktor skemmti sér líka vel þó hann væri ekki alveg jafn heillaður af hestarólunum og litli frændi hans!

Skemmti sér þó bara vel í rólunum!! ;o)


Páfuglinn tjaldaði öllu sem til var!



