Notalegur sunnudagur

 

Við Ástþór Örn tókum daginn snemma á sunnudeginum og drifum okkur í dýragarðinn...vorum fegin að hafa mætt snemma því þegar við fórum nokkrum klukkutímum seinna var mörghundruð metra röð að miðasölunni!

Það var skemmtilegt í dýragarðinum og margt að sjá. Myndavélin varð nú reyndar batteríslaus :o( Á eftir röltum við aðeins um Camden áður en við tókum lestina í átt heim þar sem við hlóðum batteríin okkar

og myndavélarinnar áður en við tókum smá sunnudagsgöngu!

 

 

Mættur í dýragarðinn

 

 

Skoðuðum sædýrasafnið og þar voru þessi fallegu kóralrif og skrautlegu fiskar

 

 

 

Ástþór Örn og fullt af Púmbum...villisvínum!

 

 

 

Ég var nú hálfkjökrandi þegar við heimsóttum górillurnar og

Ástþór Örn skildi ekkert í mér að finna einhverja samkennd með

górillufrú sem þvoði þvott í læk.

 

 

 

Ástþór Örn fór nokkrar salibunur hér og skemmti sér konunglega

 

 

 

Pelikanar og flamingófuglar

 

 

 

 

Slakað aðeins á með ís!

 

 

 

Ástþóri Erni fannst nú íslensku kindurnar fallegri en þær ensku

 

 

 

 

 

Þessir gíraffar voru jafn rólegir og yfirvegaðir og þeir sem við höfum rekist á í öðrum dýragörðum.

 

 

 

Og þessari mynd af ortunum náði ég rétt áður en vélin varð batteríslaus!

 

 

 

Eftir smá hvíld og batteríshleðslu drifum við okkur aftur út í góða veðrið

 

 

 

Fórum í Hyde Park

 

 

 

Ástþór Örn við Royal Albert Hall

 

 

 

Fylgdumst aðeins með þessum leika listir sínar á hjólabrettum

 

 

 

 

 

 

 

Ein klassísk Lundúnarmynd!

 

 

 

London Eye og Westminster