London Eye og Westminster

 

Á mánudaginn skruppum við í London Eye. Amma Kata ákvað nú bara að sleppa því að fara með þar sem hún hefði sjálfsagt bara þurft áfallahjálp eftir hringferð í parísarhjólinu!

Skemmtilegt að fara í parísarhjólið og um að gera að mæta snemma eða forpanta miða á netinu, oft ansi langar raðir. Svo röltum við um Westminster og Ástþór Örn var næstum lentur á

slysavarðstofunni.

 

 

 

 

 

Afi Ástþór og Big Ben

 

 

 

 

 

Ég var á tímabili að spá hvort maðu rætti að vera rosa lofthræddur þarna uppi en náði sem betur fer að hrista

það af mér!

 

 

   

 

 

 

Þetta var óskauppstilling hjá Ástþóri Erni sem mér skilst að sé fengin úr Garfieldbók!!!!

 

 

 

Ástþór Örn með Mandela á þingtorginu

 

 

 

 

 

Við Westminster Abbey

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn stórslasaður kominn á hestbak á afa. Við settumst inn á kaffihús og

ekki vildi nú betur til að þegar ég opnaði hurðina og var á leið út var Ástþór Örn

aftur á móti eitthvað að sýna sig fyrir einhverjum stelpum sem sátu á kaffihúsinu og

gekk á brúnina á glerhurðinni! Hann fékk heilmikla kúlu og sár á ennið og

má heita að vera heppinn að hafa hreinilega ekki endað Lundúnarferðina á

slysó! En við drifum okkur í næsta apótek og fengum ansi fínan kælibakstur

sem virkaði vel og ekki spillt fyrir að hann var með myndum af herramönnunum sívinsælu :o)

Þetta jafnaði sig því fljótt!

 

 

 

Afi sjúkraflutningamaður

 

 

Óhappið var svo alveg gleymt þegar við fórum út að borða á Chicago Rib Sack,

þar sem dekrað er við krakka jafnt sem bragðlauka foreldranna!!

 

 

Hámað í sig rifjum :o)

 

 

 

Alsæll með kolkrabbablöðru og súkkulaðiís!! Toppurinn felur ummerkin

af kaffihúsinu fyrr um daginn. Gamanið fór svo að grána um kvöldið

þegar við buðum honum á tónleika með okkur í Barbican Center.

Þar spilaði hinn ítalski Paolo Conte en Ástþór Örn sat og kvaldist og

þótti þetta það versta sem hann hafði á ævinni lent í! Ósvífnin var líka

algjör þar sem ekkert var sungið á íslensku.

Við hin skemmtum okkur mjög vel og Ástþór Örn mun sjálfsagt meta þessa

kvöldstund einhvern tímann seinna.

 

 

 

Nokkrir tímar í heimferð! Alsæll strákur með ferðina en spenntur að komast

heim að hitta pabba og Arnald Kára :o)