Amalíumborg og Tívolí

 

Á laugardeginum var stefnan sett á Tívolí. Við hófum þó daginn með því að rölta niður í Store Kongensgade, fá okkur morgun-hádegismat og

líta í nokkrar antikbúðir. Á leiðinni niður Store Kongensgade keyrði konungsfjölskyldan eins og hún leggur sig fram hjá okkur í lögreglufylgd!!

 

 

 

Þrátt fyrir að enginn konunglegur væri heima í Amalíumborg ákváðum við að rölta þar við og sýna Ástþóri Erni

 

 

Hann rölti þarna um og spurði okkur "hvar er eiginlega prinsessan???".

 

 

Þegar við höfðum rölt aðeins um í Amalíumborg og þar í kring var Ástþór Örn orðinn ansi þreyttur og svolítið mikið

spenntur að komast í Tívolí. Það þurfti því aðeins að setjast og spjalla við kjökrandi strák í spennufalli!

 

 

Stuttu seinna var Ástþór Örn steinsofnaður í kerrunni! Ágætt að safna kröftum áður en Tívolí yrði tekið með trompi.

 

 

Við röltum í átt að tívolíinu göturnar á bakvið Strikið sem eru margar ansi notalegar

 

 

Í góða veðrinu á ráðhústorginu

 

 

Ástþór Örn vaknaður og tilbúinn að fara í Tívolí

 

 

Vissi ekki alveg hvernig hann átti að snúa sér þegar hann kom inn í garðinn

 

 

Fyrsta tækið sem varð fyrir valinu var Parísarhjól.

 

 

Ástþór Örn fór nokkrar ferðir í "nýju bílunum". Þau spjölluðu allan tímann saman hann og þessi skvísa við hliðina á honum.

Hann blaðraði íslensku og hún dönsku!

 

 

 

 

 

Þið hélduð kannski að þið myndum sleppa við blómamyndir!

 

 

 

 

Og hér er hann í "gömlu bílunum"

 

 

 

Ekki annað hægt en að ná allri ljósadýrðinni í Tívolíinu!

 

 

Enn fleiri myndir