Notalegur sunnudagur og ferð í dýragarðinn

 

 

 

Á sunnudeginum röltum við út á horn og settumst þar á ansi notalegt kaffihús

 

 

Gott kaffi og besta eplakaka sem ég hef smakkað fæst á þessu kaffihúsi. Sigurður gaf gulrótarkökunni fullt hús stiga

og ekki þarf að koma á óvart að Ástþóri Erni þótti báðar tegundir einstaklega góðar!

Þessar kellur sem sitja fyrir aftan mig reyndust enskar "tískulöggur" sem töluðu illa um fólk allan tímann sem við sátum þarna!!

Þessi og hin módelin voru ýmist alkar, stjórnað af foreldrum sínum, of vitlausar og svo framvegis. Þeim fannst þær greinilega alveg

vera nafli alheimsins!!

 

 

 

Ástþór Örn reyndi snarlega að fylgja nýjustu tísku og setti upp allt of stór sólgleraugu!!!!

 

 

 

 

Kominn í dýragarðinn. Ástþór Örn hefði getað verið hjá þessum afrísku dverggeitum allan daginn!

 

 

 

 

 

Og í barnadýragerðinn eru komnir tveir Tazmaniudjöflar. Gjöf til Christian prins frá yfirvöldum í Tazmaniu.

 

 

Við mæðgin vorum ansi spennt að sjá gíraffana.

 

 

Ástþór Örn hjá hvítu nashyrningunum

 

 

Tekin smá íspása

 

 

Grænmetið sem fílunum er gefið leit nú bara betur út en það sem við kaupum hér í búðunum!!

Ekki svo að skilja að þeir eigi ekki allt gott skilið...en ætti okkar grænmeti ekki að líta betur út þá?!?!

 

 

 

Þessi fílsungi er síðan í vor...hann var svolítið feiminn og var lítið fyrir að sýna sig.

 

 

Ástþór Örn að kíkja á mörgæsirnar

 

 

Við mæðgin og flamingofuglarnir

 

 

Ástþór Örn var ansi spenntur að sjá ljónin. Þau láu og slökuðu á í sólinni!

 

 

 

Eftir ferðina í dýragarðinn settumst við niður á kaffihúsi við Vesterbro torv.

 

 

 

 

 

 

Bymuseet var lokað en við gáum skoðað bæjarlíkanið sem sýnir Kaupmannahöfn um 1500.

 

 

 

Síðasta kvöldið borðuðum við úti í góða veðrinu. Ástþór Örn var reyndar að taka smá lúr!

 

 

 

 

Og á leiðinni heim röltum við yfir notalegt Grábræðratorgið

 

 

Ástþóri Erni fannst rosalega gaman að fá að fara í strætó og enn skemmtilegra að fara í lest. Hér er hann

í lestinni á leiðinni á flugvöllinn.

 

 

Var nú svolítið minni þegar hann var á leið frá Danmörku síðast.