Kaupmannahöfn í september 2006

 

Í lok september skruppum við til Kaupmannahafnar. Við bjuggumst við haustveðri en fengum þess í stað yndislegan sumarauka. Ekki skýhnoðri á himni og hitinn í kringum tuttugu gráðurnar. Ástþór Örn var ansi spenntur að komast til Danmerkur og vildi helst komast beint í Tívolí þegar við komum út af Kastrup! Reyndar var hann svolítið ruglaður þegar hann lagðist í rúmið fyrsta kvöldið. Lá og slappaði af og sagði "mikið er gott að vera kominn til Tyrklands...nei ég meina Danmörk"!!!! Við höfðum því miður ekki tíma til að fara á okkar heimaslóðir norður af Kaupmannahöfn, en verðum bara að komast fljótt aftur. Tókum þó nokkuð af myndum, njótið vel.

 

 

Ástþóri Erni fannst ansi gaman að horfa út á flugbrautina þegar við biðum eftir að komast út í vél

 

 

 

 

 

Einbeittur að lita í flugvélinni.

 

 

 

Í götunni "okkar"

 

 

 

Frelsiskirkjan var rétt hjá okkur, gaman að rölta fram hjá henni oft á dag. Ástþór Örn var annars alveg

heillaður yfir því hvað er mikið af kirkjum í Kaupmannahöfn!

 

 

 

Bátarnir skoðaðir á leið í bæinn

 

   

 

 

 

Óperuhúsið séð af Amagerbrúnni

 

 

 

Holmens kirke og Nikolaj kirke

 

 

Röltum á föstudagsmorgun niður á Kongens nytorv.

 

 

Lífvarðaskiptin vöktu töluverða athygli!

 

 

Röltum um torgið og skoðuðum skemmtilega sýningu á dýraljósmyndum

 

 

 

Sest í Nýhöfn

 

 

Ástþór Örn fékk sér rauðsprettu upp á danskan máta

 

 

Ástþóri Erni fannst nú voða notalegt að láta keyra sig í kerrunni. Það var líka fínt að hann sæti þar í rólegheitum

þegar verið var í mannþvögu og ansi auðvelt að týnast!

 

 

Eftir hádegsmatinn í Nýhöfn röltum við Strikið, kíktum í nokkrar búðir. Eins og sést keypti Ástþór Örn sér

danska fánann.

 

 

Röltum um latínuhverfið og settumst niður á Grábræðratorgi

 

 

 

Ástþór Örn fékk sér þar ítalskan ís sem bragðaðist ansi vel!

 

 

Rölti svo aðeins um torgið með fánann!

 

 

 

Fleiri myndir