Páskarnir 2009
Við búin að vera í sveitinni í páskafríinu. Búin að hafa það afskaplega notalegt, spilað, farið út að labba og leika...hér er smá brot úr páskamyndasafninu!

Við drifum okkur út í fjárhús fljótlega eftir að við komum í sveitina
Ástþór Örn er enn alveg ákveðinn í því að ætla að verða bóndi í Dal þegar hann verður stór!

Arnaldur Kári vissi ekki alveg hvað hann átti að halda í fyrstu fjárhúsaheimsókninni en áhuginn hefur vaxið með hverri heimsókn
þessa dagana!

Svo gaman úti að leika í sveitinni...já og stilla sér upp fyrir myndavélina!

Ástþór Örn búinn að þróa nýjan myndasvip, svona finnst honum hann mjög "cool" að eigin sögn...

Arnaldur Kári inni í bóklega náminu!!

Við Ástþór Örn útbjuggum páskaís með litlum súkkulaðieggjum. Hann var hér í eftirrétt á páskadag og bragðaðist
voðalega vel.

Ástþór Örn föndrari útbýr klippimyndir

Arnaldir Kára þykir mjög gaman að fara út og þegar honum finnst kominn
tími til að fara út að leika mætir hann yfirleitt með flíspeysuna sína vafna
um sig en þarna var hann stórtækari og mætti með gallann hans
Ástþórs Arnar til að koma ósk sinni á framfæri!

Leikið í sandkassanum




Arnaldur Kári nokkuð fótviss á ferðinni þegar hann gekk úr sandkassanum

Á leiðinni að heimsækja hesta

Þeir voru ansi glaðir að sjá okkur

Dufgus og svo hálfbræðurnir Neisti og Merkur

Glöddum þá með nokkrum brauðbitum

Ástþór Örn hleypir kindunum út í góða veðrið

Eva heilsar upp á Ástþór Örn

Ástþór Örn og uppáhald okkar allra, Blíðfinnur!

Hrabba og Valli komu og voru með okkur nokkra daga í páskafríinu. Þau komu að sjálfsögðu með okkur í
fjárhúsin


Í gær vorum við á svölunum í Dal þegar þrír hafernir flugu hér yfir og var gaman að fylgjast með þeim svífa hér yfir okkur


Ástþór Örn heldur mikið upp á bókina um íslenskar kynjaskepnur og ákváðu þeir Valli að bæta nokkrum við,
sem voru hver annarri skrítnari!!

Arnaldur Kári sýndi þessu öllu mikinn áhuga!!!
![]()
![]()