Páskadagur og annar í páskum



Á páskadagsmorgun var loksins komið að því að leita að páskaeggjum.
Þar sem enn er svolítið kalt um páskana í sveitinni fór ratleikurinn fram innan dyra!

Vísbendingarnar leiddu Ástþór Örn um allt hús

Þessi tvö fínu egg fundust svo loksins!

Arnaldur Kári var voða hrifinn af unganum á sínu eggi...enda hafði hann ekki hugmynd um hvað súkkulaðiegg væri!

Held að hann hafi hugsað með sér af hverju í ósköpunum þetta væri ekki á boðstólnum oftar!!!!




Ástþór Örn fékk eitt pappaegg, sem er ágætisbland við allt súkkulaðið!

Innan í því var smá sælgæti og svo einn bionicle í safnið!

Arnaldur Kári er mikill vinur Trýnu og Pílu líkt og stóri bróðir

Og við mæðgin á páskadegi að bíða eftir kvöldmatnum en eins og venjulega
vorum við með Dalslambalæri í páskamatinn

Í morgun drifum við okkur út í göngutúr. Það var einstaklega hressandi og
ágætt að labba af sér eins og nokkra bita af öllu súkkulaðinu sem var borðað í gær!!!!



Komin niður að á


Fórum svo í fjárhúsin að gefa...Arnaldur Kári orðinn ansi brattur þar!



Ástþór Örn í sumarblíðunni í júní 2004 - nánast jafn gamall og Arnaldur Kári er núna

Við heimsóttum svo klárana okkur hér út á flatir. Það urðu miklir
fagnaðarfundir hjá þessum tveimur, Frakk og Ástþóri Erni.


Léttir svo hvítur og fallegur í sólskininu
Vonum að þið hafið haft það gott í páskafríinu. Við sendum bestu kveðjur úr sveitinni

