19. desember

 

 

Það er aldeilis að tíminn flýgur áfram. Í dag á Arnaldur Kári eins árs afmæli og þökkum við allar kveðjurnar. Við hin vorum  nú uppteknari af þessum degi í dag en Arnaldi Kára þótti þó gaman að fá mest alla athyglina engu að síður!

Hann fór í 12 mánaða skoðun í gær og fékk góða skoðun! Þroskast hratt þessa dagana. Við erum þó búin að sjá að það borgar sig líklegast að halda bara afmæli snáðans svolítið fyrr í desember, stefnt að því næst.

Dagurinn var því ljúfur og rólegur, þó var bökuð ein kaka og litli kútur fékk nokkra gesti í heimsókn.

 

 

 

Arnaldur Kári 1 árs að skoða fínan pakka sem beið hans í morgun

 

 

 

Voða gaman að leika sér að pakkanum og skrautinu á honum

 

 

 

 

Í pakkanum var þessi fína bók sem vakti mikla lukku

 

 

 

Afi Ástþór og amma Kata litu inn til okkar seinni partinn. Svolítið seinna komu svo Diddi og Áslaug, Margrét og Klaus.

Áslaug og fjölskylda að koma í jólafrí til Íslands frá Þýskalandi, voða gaman að sjá þau aðeins áður en þau fara norður.

Síðan litu Þórdís og dætur við. Það gleymdist alveg að kveikja á myndavélinni á meðan þau voru í heimsókn.

 

 

Amma Kata og afi Ástþór færðu litla kút þetta fína dót og er mikið búið að hamra!

 

 

Ég á voðalega bágt með að trúa því að það sé komið ár síðan þessi stúfur kom í heiminn.

Og núna skil ég ekki hvernig mér fannst hann fæðast alveg löngu fyrir jólin...kannski af því að

ég var farin að halda að hann ætlaði ekki að birtast fyrr en á sjálfan aðfangadag. En núna

þykir mér 19. desember nú eiginlega bara á jólunum!!!!

 

 

Og svo mamma með kútana tvo! Bara tveir mánuðir í að Ástþór Örn verði 6 ára...úff úff!!!

 

 

Og ein feðgamynd

 

 

 

Afmælislestin var að sjálfsögðu tendruð og þarna má sjá ægilega dúllulegt kort

sem afi Ástþór teiknaði af litlum eins árs krullukolli!

 

 

Og hér ein af glænýjum Arnaldi Kára og nýbökuðum stóra bróður!! Fyrir frekari upprifjun má smella hér

 

 

Hafið það nú öll gott og farið ykkur hægt. Ég ætla að setja inn fleiri desembermyndir á næstu dögum!